44,3 milljóna halli á rekstri Ríkisútvarpsins Kristín Ólafsdóttir skrifar 31. ágúst 2017 19:41 Í tilkynningu segir að niðurstaðan skýrist í meginatriðum af árstíðabundinni sveiflu í rekstrinum. Vísir/GVA
44,3 milljóna króna halli var á rekstri Ríkisútvarpsins fyrstu sex mánuði ársins 2017, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Ríkisútvarpinu. Þó er gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarafkomu á árinu sem hefur verið jákvæð undanfarin ár. Í tilkynningu segir að niðurstaðan skýrist í meginatriðum af árstíðabundinni sveiflu í rekstrinum. Afkoma RÚV er að jafnaði neikvæði fyrri hluta árs en jákvæð á hinum síðari. Þá segir einnig að tekjur RÚV hafi verið 3103 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 3006 milljónir á sama tímabili ársins 2016. Rekstrargjöld án afskrifta voru 2866 milljónir króna en 2761 á síðasta ári. Afskriftir voru 156 milljónir króna en 147 milljónir á samanburðartímabilinu. Fjármagnsliðir voru enn fremur neikvæðir um 126 milljónir króna og lækka á milli ára vegna lækkunar skulda og vaxta. Þá hefur félagið haldið áfram niðurgreiðslu skulda eftir sölu á byggingarrétti við Efstaleiti 1 en stefnt er að áframhaldandi niðurgreiðslu skulda á næstu mánuðum þegar lokagreiðslur berast vegna sölunnar. Um framtíðarhorfur RÚV segir í tilkynningunni að fjárhagsleg endurskipulagning og breytingaferli árið 2014 hafi skilað jákvæðri afkomi í rekstri frá þeim tíma. Þá er unnið að innleiðingu nýrrar stefnu Ríkisútvarpsins til 2021 en þar er enn frekar „skerpt á sérstöðu RÚV sem almannaþjónustumiðils og dagskrárframboð verður þróað í samræmi við það,“ segir í tilkynningu. Í fyrra var einnig undirritaður þjónustusamningur til loka ársins 2019 en forsenda hans er að innheimt útvarpsgjald lækki ekki að raunvirði frá árinu 2016 og að tekjustofnar RÚV séu áfram samsettir af opinberum tekjum og auglýsingatekjum.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira