Fórna náttúruverndarsvæði í Amason fyrir gullvinnslu Kjartan Kjartansson skrifar 24. ágúst 2017 12:12 Námuvinnsla á sér þegar stað í Para-ríki. Nú vilja stjórnvöld opna náttúruverndarsvæði fyrir vinnslu. Vísir/AFP
Brasilísk stjórnvöld hafa lagt af náttúruverndarsvæði á stærð við Danmörku í Amasonfrumskóginum og gefið námavinnslufyrirtækjum heimild til að leita að gulli og öðrum málum þar. Svæðið er í norðanverðri Brasilíu við Amapa- og Para-ríki og er um 46.000 ferkílómetrar að stærð. Tæpur þriðjungur þess verður opinn fyrir námuvinnslu. Ríkisstjórnin segir að níu verndarsvæði náttúru og frumbyggja njóti enn verndar. Námufyrirtækin og orkumálaráðuneytið segja að vernduðum skógi verði ekki raskað. Aðgerðasinnar óttast engu að síður að svæðið geti skaðast verulega í framkvæmdunum. Randolfe Rodrigues, öldungadeildarþingmaður stjórnarandstöðunnar, kallar aðgerðina „stærstu árásina á Amason undanfarin fimmtíu ár“, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Náttúruverndarsamtökin World Wildlife Fund vöruðu við því í síðasta mánuði að námuvinnsla myndi leiða til fólksfjöldasprengju á svæðinu, eyðingar skóga og vatnslinda, tap á líffræðilegum fjölbreytileika og skapa deilur um land.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Fleiri fréttir Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Sjá meira