Hamilton jafnaði þar með met Michael Schumacher yfir ráspóla á ferlinum. Báðir hafa þeir náð 68 ráspólum. Hamilton gerði það í 200 keppnum en keppnin um helgina er hans tvönhudraðasta.
Fyrsta lota
Hamilton var fljótastur í lotunni og Vettel var annar. Fyrstu sex ökumennirnir voru ökumenn Mercedes, Ferrari og Red Bull eins og við var að búast. Munurinn á Hamilton sem var fljótastur og Ricciardo sem var sjötti var innan við sekúnda.
Í fyrstu lotu féllu Sauber ökumennirnir út ásamt Williams ökumönnum og Daniil Kvyat á Toro Rosso.
Önnur lota
Raikkonen var að glíma við titring í bíl sínum sem hefur eflaust tafið hann aðeins. Hann hafði einnig titring að glíma við í fyrstu lotu.
Hamilton var fyrstur til að setja hring í annarri lotu og það var á nýju brautarmeti, 1:43,539.
Hann bætti metið svo aftur innan sömu lotu og fór 1:42,927. Bottas varð annar í lotunni, þriðjung úr sekúndu á eftir Hamilton.
Í þriðju lotu féllu McLaren ökumennirnir út ásamt Haas ökumönnum og Carlos Sainz á Toro Rosso.

Tíu fljótustu eftir niðurskurði í tveimur undanfarandi lotum glímdu um ráspólinn í þriðju lotunni.
Jolyon Palmer á Reanutl nam staðar á brautinni og mikill reykur steig upp úr bíl hans. Olíuþrýstingu á gírkassanum féll.
Hamilton setti enn eitt brautarmetið í þriðju lotunni 1:42,907. Hann bætti sig svo enn frekar í seinni tilraun í þriðju lotu. Ráspólstími hans var 1:42,553.
Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 11:30 á morgun á Stöð 2 Sport 2.
Hér að neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.