Brotahrina sem þurfi að stöðva Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 20. júlí 2017 18:03 Aldo Viðar Bae er sakaður um að hafa haft fé af fjölda fólks.
Hæstiréttur hefur staðfest að Aldo Viðar Bae, sem áður hét Halldór Viðar Sanne, skuli sæta gæsluvarðhaldi næstu fjórar vikurnar, eða til 15. ágúst næstkomandi, vegna meintra fjársvika og fjárdráttar. Aldo Viðar, sem er dæmdur fjársvikari, hefur verið í haldi lögreglu í tæpa fjóra mánuði, eða frá handtöku 27. mars. Hann er sakaður um að hafa haft fé af fjölda fólks með ólögmætum hætti og segir lögreglustjóri í greinargerð sinni um málið að stöðva þurfi þessa brotahrinu.Brotin beindust gegn fólki í erfiðri stöðu Aldo sætir ákæru fyrir fjársvik, tilraun til fjársvika og fjárdráttar. Hann neitaði sök þegar mál hans var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í þessum mánuði. Aldo er grunaður um að hafa haft fé af fjölda aðila með ólögmætum og refsiverðum hætti og meðal annars svikið út fé með blekkingum. Um er að ræða fjársvika- og fjárdráttarbrot sem beinast að fólki sem hafði verið í erfiðri stöðu vegna erfiðs leigumarkaðar, að því er segir í greinargerð lögreglu á vef Hæstaréttar.Áframhaldandi gæsluvarðhald nauðsynlegt „Að mati lögreglustjóra sé um að ræða brotahrinu sem þurfi að stöðva og því sé nauðsynlegt að ákærði sæti gæsluvarðhaldi þar til dómur liggur fyrir í máli hans. Tekur lögreglustjóri sérstaklega fram að ákærði hafi áður komið við sögu lögreglu í tengslum við fjársvik og hann hlotið dóma vegna fjársvika, bæði hér á landi og í Danmörku,“ segir í greinargerðinni.Fréttablaðið greindi frá meintum svikum Aldos Viðars þann 18. mars síðastliðinn en þá sagði Bergljót Snorradóttir farir sínar ekki sléttar eftir viðskipti við hann. Kvaðst hún hafa greitt honum leigu fyrirfram fyrir einbýlishús í Njarðvík sem Aldo átti ekki heldur var sjálfur með í leigu. Í kjölfarið ræddi Fréttablaðið við fleira fólk sem taldi sig hlunnfarið í viðskiptum við Aldo.
Tengdar fréttir Halldór Viðar Sanne neitaði sök Hann er ákærður fyrir fjársvik, tilraun til fjársvika og fjárdrátts. 8. júlí 2017 09:15 Halldór Viðar Sanne ákærður fyrir fjársvik Gefin hefur verið út ákæra á hendur Halldóri Viðar Sanne fyrir fjársvik, tilraun til fjársvika og fjárdrátts en hann hefur verið í gæsluvarðhaldi samfleytt frá 28. mars síðastliðnum. 28. júní 2017 12:40 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Fleiri fréttir Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Sjá meira
Halldór Viðar Sanne neitaði sök Hann er ákærður fyrir fjársvik, tilraun til fjársvika og fjárdrátts. 8. júlí 2017 09:15
Halldór Viðar Sanne ákærður fyrir fjársvik Gefin hefur verið út ákæra á hendur Halldóri Viðar Sanne fyrir fjársvik, tilraun til fjársvika og fjárdrátts en hann hefur verið í gæsluvarðhaldi samfleytt frá 28. mars síðastliðnum. 28. júní 2017 12:40