Veiði

883 urriðar á land í Litla Sjó á einni viku

Karl Lúðvíksson skrifar
11.5 punda urriði úr Grænavatni.  Stærsti fiskurinn úr Veiðivötnum í sumar.
11.5 punda urriði úr Grænavatni. Stærsti fiskurinn úr Veiðivötnum í sumar. Mynd: Bryndís Magnúsdóttir
Veiði stendur nú sem hæst í Veiðivötnum og sem fyrr er mikil ásókn á þetta vinsæla vatnasvæði en það er heldur ekkert skrítið.

Þegar nátturufegurð, góð veiði og félagsskapur fer vel saman er fátt sem toppar það. Veiðin í sumar á vatnasvæði Veiðivatna hefur verið góð og í síðustu viku voru hátt í 13.000 fiskar komnir á land.  Veiðin er auðvitað upp og ofan en það koma kippir í þau öll og í síðustu viku var greinilega komað að Litla Sjó því í vikunni veiddust samtals 883 urriðar sem er lang besta vikan í vatninu í sumar.

Litli Sjór er eða í það minnsta hefur verið eitt af þremur mest stunduðu vötnunum á svæðinu en Snjóölduvatn og Hraunsvötnin njóta líka mikilla vinsælda.  Mesta veiðin í úr Snjóölduvatni í sumar og virðist fátt geta komið i veg fyrir að það verði á toppnum yfir veiði á vatnasvæðinu en úr því eru komnir 5147 silungar samkvæmt síðustu tölum úr vötnunum.  Nýjar veiðitölur koma líklegast í dag og við komum til með að greina frá þeim um leið og þær berast.  Það sígur aðeins á seinni helminginn í Veiðivötnum en veiðin getur yfirleitt haldist ansi góð út tímabilið sérstaklega á bleikjunni en hún virðist bara taka betur þegar líður á sumarið. Stærsti fiskurinn er 11.5 punda urriði úr Grænavatni en hann sést ásamt veiðimanninum Axel á meðfylgjandi mynd. 






×