Þurfa nauðsynlega blóð fyrir verslunarmannahelgi Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. júlí 2017 12:59 Mikil eftirspurn er eftir öllum blóðflokkum í Blóðbankanum um þessar mundir. Vísir/Getty
Blóðbankinn kallar enn eftir hjálp blóðgjafa en skortur er á blóði í bankanum. Jórunn Frímannsdóttir, deildarstjóri blóðsöfnunar hjá Blóðbankanum, segir stöðuna enn alvarlega þrátt fyrir að fluttar hafi verið fréttir af ástandinu í gær. Jórunn var gestur Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær en hún sagði skort í birgðasafni Blóðbankans mega rekja til sumarleyfa. Þá hefur notkun á blóði einnig verið mikil undanfarnar vikur en hún segir mikilvægt að lagerinn stækki fyrir verslunarmannahelgina „Staðan er þannig að okkur vantar alveg enn þá mjög mikið blóð. Blóðgjafar mega enn taka við sér, betur má ef duga skal, og við stöndum frammi fyrir því að við þurfum að vera dugleg næstu daga og næstu vikur,“ segir Þórunn í samtali við Vísi. Hún segir heimsóknir blóðgjafa í Blóðbankann aðeins tíðari en venjulega í dag en enn sé sár vöntun á blóði. Þau hjá Blóðbankanum ætli því að reyna að freista blóðgjafa með kræsingum. „Við ætlum, til að reyna að koma til móts við blóðgjafa, að grilla pylsur á morgun og svo ætlum við að reyna að bjóða upp á ís á fimmtudaginn í sólinni. Við hvetjum alla blóðgjafa til að koma í heimsókn,“ segir Jórunn. Hún leggur áherslu á að mikil eftirspurn sé eftir öllum blóðflokkum og hvetur blóðgjafa, nýja jafnt sem gamalreynda, til að heimsækja Blóðbankann að Snorrabraut 60 í Reykjavík í vikunni.Hér að neðan má hlusta á viðtalið við Jórunni í Reykjavík síðdegis.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Sjá meira