Umgengni við suma veiðistaði afleit Karl Lúðvíksson skrifar 10. maí 2017 10:31 Sóðaskapur við Elliðavatn Mynd: Nökkvi Svavarsson
Það er ótrúlegt að á hverju ári þurfi virkilega að fara í umræðu um umgengni á veiðistöðum en virðingin fyrir náttúrunni virðist oft á tíðum lítil sem engin. Veiðivísir hefur sett inn grein á hverju vori vegna fjölda ábendinga frá veiðimönnum um slælega umgengni við ár og vötn landsins. Sumir virðast því miður telja það í lagi að troða bjórdósum inní grjóthrúgur eða skilja þær bara eftir við bakkann eins virðist reykingamönnum það sérstaklega tamt að henda stubbunum hvar sem er. Það eru svartir sauðir í öllum hópum og þetta nær ekki bara yfir veiðimenn heldur einnig einhverja sem fara á þessa staði og skilja svo ruslið eftir. Það sem við veiðimenn getum í það minnsta gert er að taka upp eftir okkur tauma enda eru þeir skeinuhættir fuglum sem lifa við vötnin og árnar og ungarnir eru sérstaklega gjarnir á að flækja sig í gömlum taumum sem því miður drepur síðan fuglinn en fullorðnir fuglar eru ekki síður í hættu fyrir þessu. Sígarettustubba er hægt að setja í box eða í vasann en ekki skjóta þeim frá sér enda eyðast þeir seint upp í náttúrunni. Veiðimenn ganga heilt yfir mjög vel um veiðisvæðin sín og það er skilda þeirra eldri að kenna yngri veiðimönnum að ganga vel um náttúruna og taka allt upp eftir sig á vettvangi að veiði lokinni eða eins og veiðimenn segja oft "skildu ekker eftir nema sporin".
Mest lesið Fer Jökla yfir 1000 laxa í sumar? Veiði Ný vötn í Veiðikortinu Veiði Stórurriði sleit sig lausann við Elliðavatn í gærkvöldi Veiði Gengið með Langá og Haukadalsá Veiði Þingvallaurriðinn gefur sig ekki án fyrirhafnar Veiði 75 ára afmæli SVFR Veiði Húseyjakvísl gaf vel þrátt fyrir erfið skilyrði Veiði Eystri Rangá aflahæst laxveiðiánna Veiði Rjúpusnafsinn ómissandi hjá mörgum Veiði Áframhald á kuldatíð seinkar veiðivon á norðurlandi Veiði