Fá fund vegna fráveitumála: „Ánægjulegt að ráðherra er ekki alveg búinn að gleyma okkur“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 27. apríl 2017 15:07 Frá Mývatni en þéttbýlið í Skútustaðahreppi er að miklu leyti innan verndarsvæðis vatnsins. vísir/gva
Björt Ólafsdóttir, umhverfis-og auðlindaráðherra, mun funda með sveitarstjórnarmönnum í Skútustaðahreppi vegna stöðu fráveitumála og aðkomu ríkisins að úrbótum í þeim efnum. Þetta segir Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps, í samtali við Vísi en í gær ritaði hann pistil á vef hreppsins þar sem hann lýsti því að sveitarstjórn hefði í tvígang óskað eftir fundi með ráðherra en án árangurs. Hann fékk svo viðbrögð frá ráðuneytinu í dag en ekki liggur fyrir hvenær fundað verði með ráðherra þar sem hún er á ráðstefnu erlendis. „Þannig að við bíðum bara þolinmóð. Það þarf að vanda til verka en það var allavega ánægjulegt að ráðherra er ekki alveg búinn að gleyma okkur,“ segir Þorsteinn.Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri SkútustaðahreppsFyrir liggur að fara þarf í umfangsmiklar framkvæmdir til að bæta fráveitumál í hreppnum og segir Þorsteinn að þær kosti á bilinu 500 til 700 milljónir króna. Í bókun sveitarstjórnar vegna málsins segir að kröfur um úrbætur megi rekja til verndarlaga um Mývatn og Laxá en í þeim segir að kostnaður við framkvæmd laganna greiðist úr ríkissjóði. „Það liggur fyrir hvað þarf að gera en það þarf að vanda til verka, velta öllu við og skoða alla möguleika. Þannig erum við að við erum að fara í viðræður við Norðurorku á Akureyri um hugsanlega aðkomu þeirra svo við erum að kanna alla fleti á þessu máli. Alls staðar komum við að sama brunni, við höfum alltaf fengið jákvæð viðbrögð frá öllum ráðamönnum um að ríkið þurfi að koma að þessu máli því þetta er dýrt fyrir lítið sveitarfélag og á grunni verndarlaganna um Mývatn og Laxá þá er alveg ljóst að ríkið á að koma að kostnaði við þetta,“ segir Þorsteinn.Pistilinn sem sveitarstjórinn ritaði í gær má lesa hér.
Tengdar fréttir Aðgerðir til bjargar Mývatni eru hafnar Verkfræðistofa vinnur úttekt á fráveitumálum við Mývatn. Efla á rannsóknir og vöktun, að ákvörðun fráfarandi ríkisstjórnar. Endurskoðun verndaráætlunar fyrir Mývatn og Laxá er að hefjast. Fámennt sveitarfélag getur ekki eitt bori 7. nóvember 2016 07:00 Ríkið hefur lausn fráveitumála í Mývatnssveit í hendi sér Kastljósþættir RÚV 21. og 22. febrúar sl. voru eignaðir fráveitumálum í Mývatnssveit. Vegna þess vill Skútustaðahreppur koma á framfæri að frá árinu 2014 hefur sveitarstjórn Skútustaðahrepps lagt ríka áherslu á fráveitumál í sveitarfélaginu og ítrekað haft frumkvæði að samstarfi stjórnvalda um málefnið. 28. febrúar 2017 07:00 Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Skuldar ekkert Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Sjá meira
Aðgerðir til bjargar Mývatni eru hafnar Verkfræðistofa vinnur úttekt á fráveitumálum við Mývatn. Efla á rannsóknir og vöktun, að ákvörðun fráfarandi ríkisstjórnar. Endurskoðun verndaráætlunar fyrir Mývatn og Laxá er að hefjast. Fámennt sveitarfélag getur ekki eitt bori 7. nóvember 2016 07:00
Ríkið hefur lausn fráveitumála í Mývatnssveit í hendi sér Kastljósþættir RÚV 21. og 22. febrúar sl. voru eignaðir fráveitumálum í Mývatnssveit. Vegna þess vill Skútustaðahreppur koma á framfæri að frá árinu 2014 hefur sveitarstjórn Skútustaðahrepps lagt ríka áherslu á fráveitumál í sveitarfélaginu og ítrekað haft frumkvæði að samstarfi stjórnvalda um málefnið. 28. febrúar 2017 07:00