Drottningin er ávallt með litla handtösku á sér þar sem hún geymir penna, varalit, lítinn spegil og myntu. Samkvæmt Hugo Vickers, sem er sagnfræðingur sem sérhæfir sig í sögu bresku krúnunnar, er tilgangur töskunnar þó margþættur.
Ef að hún færir töskuna frá einni hendi yfir í aðra þá er hún að senda þau skilaboð að hún vilji að samtalið sem hún á á þeirri stundu fari að enda fljótlega. Manneskjan sem hún er að tala við mundi þó ekki taka eftir því heldur mundi starfsmaður hennar koma til hennar og segja að það sé einhver sem bíði eftir að fá að hitta hana.
Þegar drottningin er stödd í matarboði setur hún töskuna upp á borð ef hún vill að boðið endi á næstu fimm mínútum.
Stærstu og mikilvægustu skilaboðin hennar eru þó þegar hún fer að fikta í hringnum sínum. þá vill hún að starfsmaður hennar komi og bjargi henni frá þeim aðstæðum sem hún er í, undir eins.

