Nói harmar meinlega myntukonfektmola Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. apríl 2017 15:31 Plastmagnið í eggi frá Nóa Siríus í fyrra sem var mikið gagnrýnt. Brugðist var við þeirri gagnrýni en ekki gert ráð fyrir áhrifum myntukonfektmolanna. Andrés Skúlason
Óhætt er að segja að viðleitni Nóa Siríus til að sýna umhverfislega ábyrgð hafi ekki tekist fullkomlega upp. Undanfarin ár hefur árlega gætt töluverðrar reiði meðal umhverfisverndarsinna hvað varðar allt það plast sem er notað til að pakka sælgætinu inn sem er að finna innan í páskaeggjunum. Í ár var ákveðið að hafa plastið í lágmarki og fjarlægja það sem mátti missa sín. Úr varð að fjölmargir fundu piparmyntubragð af eggjum sínum og voru allt annað en sáttir.Á Facebook-síðu Nóa Siríus, sem hefur verið í fararbroddi hvað varðar páskaeggjasölu undanfarin ár og áratugi, hefur fólk svarað páskakveðju frá fyrirtækinu með reiðilestri vegna þessa. „Gaf dóttur minni 4 ára venjulegt egg nr4 og hún sagđi ađ væri skrítið og vildi ekki borða það…ég smakkaði það og það er piparmyntu bragđ af egginu! Hvađa klúður er það?“ segir einn kaupandi. „Ég og dóttir mín fengum eitt páskaegg hingað út til Noregs frá Íslandi, egg nr. 4 venjulegt. Fyrir okkur er það gull að fá svona frá Íslandi, nema hvað það olli miklum vonbrigðum í ár. Eggið er skrýtið og var enginn málsháttur í egginu :-( Svekkelsi.... hef alltaf haldið mig við egg frá ykkur, en veit ekki lengur.“ Nói Siríus harmar myntusmitið í stöðluðu svari á Facebook-síðu sinni vegna málsins. Myntukonfektmolum sé um að kenna sem hafi ekki verið pakkað inn í plast. Öllum ósáttum neytendum hefur verið svarað á og þeir hvattir til að hafa beint samband við fyrirtækið svo hægt sé að aðstoða það frekar. „Okkur þykir þetta ákaflega leitt en svo virðist sem að myntumolarnir hafi smitað út frá sér bragði í sum eggin í ár eftir að við fjarlægðum plastumbúðirnar af molunum vegna aukinnar áherslu á umhverfisábyrgð. Við ætlum sannarlega að læra af þessu og finna lausn sem kemur í veg fyrir að það endurtaki sig enda eiga neytendur að sjálfsögðu að geta gengið að gæðunum vísum þegar kemur að súkkulaði frá Nóa Síríus. Endilega hafðu samband við okkur sem fyrst í tölvupósti á noi@noi.is til að við getum aðstoðað þig.“ Markaðsstjóri Nóa Siríus sagði í viðtali við Vísi í fyrra að ástæðan fyrir öllu plastinu væri einmitt til að hindra svona smit. „Ástæðan fyrir að sumar vörur eru settar í plast inn í eggjunum er sú að það er verið að verja þær eða aðrar vörur, það getur verið smitun á milli, sérstaklega í bragði,“ sagði Auðjón Guðmundsson, markaðsstjóri Nóa. Stefna fyrirtækisins væri að minnka notkun á plasti, sem fyrirtækið gerði en með misjöfnum árangri. Nói Siríus hefur að eigin sögn aldrei selt fleiri páskaegg en í ár.vísir/stefánÍtarlegri yfirlýsingu frá Nóa Siríus má sjá hér að neðan og viðbrögð neytenda við færslu Nóa Siríusar þar að neðan.Vegna aukinnar vitundar um umhverfisábyrgð fyrirtækisins þá var ákveðið að fjarlægja allt plast og umbúðir sem máttu missa sín úr eggjunum. Þetta var virkilega krefjandi verk og mjög viðkvæmt þar sem þurfti að stíga varlega til jarðar. Við hófum því gífurlega umbótavinnu bæði hvað varðar umbúðir og vinnsluna á eggjunum sjálfum. Því miður er greinilegt að myntu konfektmolinn hafa í einhverjum tilfellum smitað út frá sér og neytendur hafa haft samband við okkur um það. Myntu Pralín molarnir voru teknir úr þeim umbúðum sem þeir hafa ávalt verið í og þess vegna myndaðist smit í eggin. Við hjá Nóa hörmum þetta atvik að öllu leiti og erum að vinna að því að svara þeim sem að lentu í því að páskaeggið þeirra bragðaðist ekki eins og Nóa súkkulaði ber að bragðast. Það er virkilega leiðinlegt að þetta hafi komið upp, sérstaklega í ljósi þess að þetta er stærsta páskavertíð Nóa Síríus frá upphafi. Nýjungarnar slógu í gegn og við erum í skýjunum yfir viðtökunum á markaðnum. Starfsfólk Nóa, öll sem eitt, er búið að standa virkilega vel að þessu tímabili og á mikið lof skilið. Þetta er virkilega skemmtilegur tími fyrir okkur og til að mynda þá bjuggum við í fyrsta skipti til sérstakt egg einungis fyrir þá sem starfa hjá Nóa. Við munum gera það að hefð og koma fólkinu á óvart ár hvert, þetta vakti mikla lukku.En hvað piparmyntumálið varðar þá munum við taka hart á þessu, þar sem neytendur eiga geta gengið að gæðunum vísum þegar kemur að súkkulaði frá Nóa Síríus, enda óbreytt uppskrift frá upphafi og alltaf lagður mikill metnaður í framleiðslu þess.
Páskar Tengdar fréttir Telur að fólk fái leið á „hálfvitapáskaeggjum“ Ekki hugnast öllum nýir málshættir sem leyndust í páskaeggjum landsmanna í ár. Þjóðháttafræðingur segir nýju málshættina ekki eins hnitmiðaða og þá gömlu. 18. apríl 2017 07:00 Mölvar páskaegg í stórum stíl Myndbandsbrot af manni sem gengur berserksgang í verslun Hagkaups. 7. mars 2017 13:54 Vegan páskaegg seldust upp Nói Síríus hyggst framleiða fleiri vegan páskaegg á næsta ári. 18. apríl 2017 07:00 Mest lesið Sambíóin í Mjóddinni víkja fyrir Nova Viðskipti innlent Ætlað að verða nýtt íslenskt kennileiti á heimsmælikvarða Viðskipti innlent Hulunni svipt af vaxtaviðmiðinu Viðskipti innlent Jensens Bøfhus lokað Viðskipti erlent Grafalvarleg staða Viðskipti innlent Óvissu á lánamarkaði eytt í byrjun næsta árs Viðskipti innlent „Íslenski neytandinn er allavega ekki að sýna merki um samdrátt“ Neytendur Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Viðskipti innlent Græða á tá og fingri á svikum og prettum Viðskipti erlent Telja viðgerð geta tekið allt að ár Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hulunni svipt af vaxtaviðmiðinu Grafalvarleg staða Sambíóin í Mjóddinni víkja fyrir Nova Bein útsending: Umræður á seinni degi Sjávarútvegsráðstefnunnar Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Ætlað að verða nýtt íslenskt kennileiti á heimsmælikvarða Óvissu á lánamarkaði eytt í byrjun næsta árs Telja viðgerð geta tekið allt að ár Ráðin forstöðukona Þjónustu Veitna Bretar veita Alvotech leyfið sem fékkst ekki í Bandaríkjunum Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Samorku Útlit fyrir „hrollkaldan vetur“ en eitt ljós í myrkinu Bein útsending: Leiðir til að efla hlutabréfamarkaðinn Ómögulegt sé fyrir fólk á Eflingarlaunum að komast á húsnæðismarkað Bein útsending: Kanónur ræða sjávarútveginn í Hörpu Farþegum fjölgaði um 14 prósent í október Steinunn frá UNICEF til Festu Ætla í hart vegna ákvörðunar Fjarskiptastofu Sýn tapaði 239 milljónum Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Bein útsending: Í hvað á orkan að fara? Sækja á fjórða milljarð króna Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Sjá meira
Telur að fólk fái leið á „hálfvitapáskaeggjum“ Ekki hugnast öllum nýir málshættir sem leyndust í páskaeggjum landsmanna í ár. Þjóðháttafræðingur segir nýju málshættina ekki eins hnitmiðaða og þá gömlu. 18. apríl 2017 07:00
Mölvar páskaegg í stórum stíl Myndbandsbrot af manni sem gengur berserksgang í verslun Hagkaups. 7. mars 2017 13:54
Vegan páskaegg seldust upp Nói Síríus hyggst framleiða fleiri vegan páskaegg á næsta ári. 18. apríl 2017 07:00