Atriðið sem allir eru að tala um: Hin asíska Sigga Kling barði Audda og Steinda í klessu Stefán Árni Pálsson skrifar 3. apríl 2017 10:30
Fyrsti þátturinn af Asíska draumnum var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi og fór þáttaröðin heldur betur vel af stað. Þátturinn er ein stór keppni þar sem Steindi Jr. og Auðunn Blöndal keppa á móti Sveppa og Pétri Jóhanni í stigasöfnun og þurfa þeir að fara í gegnum allskonar þrautir til að ná í stig. Í fyrsta þættinum mátti sjá atriði sem vakti sérstaklega mikla athygli og var rætt mikið um það á samfélagsmiðlum og í partýum um helgina. Það var þegar Auddi og Steindi skelltu sér í mjög svo sérstaka fegrunarmeðferð og voru í raun barðir sundur og saman. Konan sem tók á móti þeim minnti óneitanlega á okkar eigin Siggu Kling. Asíski draumurinn verður framhald af Evrópska draumnum sem og Ameríska draumnum en þeir þættir voru sýndir á Stöð 2 á árunum 2010 og 2012. Í Ameríska draumnum ferðuðust Auðunn Blöndal og Egill Gillz saman í liði ásamt Sveppa og Villa sem voru í hinu liðinu um Bandaríkin þar sem þeir leystu ýmsar skemmtilegar þrautir líkt og að láta löggu hlæja og að hafa saurlát á ógeðslegu almenningssalerni. Í Evrópska draumnum tók Steindi svo við keflinu og ferðaðist um með Audda en Pétur Jóhann tók við keflinu í liði Sveppa og saman ferðuðust þeir félagar um Evrópu í sama tilgangi, að leysa þrautir og fá fleiri stig en hitt liðið. Þar fóru þeir félagar meðal annars í fallhlífarstökk. Ljóst er að þeir félagar munu ganga langt í að toppa sig í ferðalaginu um Asíu en áhugavert verður að sjá hvaða þrautir þeir munu taka að sér að leysa. Hér að neðan má sjá umræðuna á Twitter um þáttinn undir kassamerkinu #asiskidraumurinn og efst í fréttinni má sjá atriðið sjálft.#Asískidraumurinn Tweets
Asíski draumurinn Mest lesið Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Lífið Í kossaflensi á Beyoncé Lífið Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Lífið „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Fleiri fréttir Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Glæsileg íbúð handboltakempu í Sigvaldahúsi Heklaði sér fyrir útborgun í húsi í Þingholtunum Hilmir Snær og Vala eiga von á stúlku Stjörnufans í sumarselskap Sjá meira