Skuggi Jon Jones hvílir yfir Daniel Cormier Pétur Marinó Jónsson skrifar 8. apríl 2017 23:00 Meistarinn Daniel Cormier. Vísir/Getty
Meistarinn Daniel Cormier mætir Anthony Johnson í aðalbardaga kvöldsins á UFC 210 í nótt. Þrátt fyrir að Cormier endi aftur með beltið um mittið í kvöld eru ennþá margir sem telja hann ekki vera þann besta í flokknum. Bardaginn gegn Anthony Johnson er endurat en kapparnir börðust um titilinn í maí 2015 þar sem Cormier sigraði með hengingu í 3. lotu. Cormier var í miklu basli í 1. lotu en snéri taflinu sér í vil og sigraði (bardagann má sjá hér). Léttþungavigtarmeistarinn Daniel Cormier hefur nú verið meistari í tæp tvö ár. Þrátt fyrir það telja flestir að Jon Jones sé ennþá besti léttþungavigtarmaður heims. Jones er einn besti bardagamaður allra tíma en hefur lítið barist undanfarin tvö ár vegna vandræða hans utan búrsins. Hann hlaut skilorðsbundinn dóm eftir að hafa ollið þriggja bíla árekstri 2015 og flúið vettvang og afplánar nú eins árs keppnisbann eftir fall á lyfjaprófi. Banninu lýkur í júlí og mun hann að öllum líkindum fá næsta titilbardaga gegn sigurvegaranum úr viðureign Cormier og Johnson. Þrátt fyrir allt vesenið í kringum Jon Jones utan búrsins nýtur hann enn töluverðra vinsælda. Á sama tíma er Daniel Cormier einn óvinsælasti meistarinn í UFC í dag. Oft er baulað á hann á blaðamannafundum þrátt fyrir að hann haldi sér að mestu frá vandræðum utan búrsins og hefur ekki fallið á neinum lyfjaprófum. Cormier gaf þó aðdáendum ástæðu til að baula á sig eftir dramatík í vigtuninni í gær. Er Cormier steig á vigtina var hann 206,2 pund eða 1,2 pundi yfir 205 punda takmarkið. Hann vigtaði sig aftur inn rúmum tveimur mínútum seinna og var þá akkúrat 205 pund. Ótrúlegt að missa 1,2 pund á svo skömmum tíma og hreinlega lygilegt. Það má segja að ýmislegt gruggugt hafi gengið á í seinni vigtuninni. Cormier þurfti handklæði til að hylja sig enda þurfti hann að vera á adamsklæðunum á vigtinni til að vera sem léttastur. Í seinni vigtuninni þrýstir hann niður á handklæðið með höndunum en það er gamalt bragð úr ólympískri glímu til að vera sem léttastur á vigtinni. Þannig tókst Cormier að missa 1,2 pund (rúm 500 grömm) á svo skömmum tíma. Jon Jones var fljótur að benda á þetta er hann ræddi við fjölmiðla í gær. Þrátt fyrir að vera langt í frá einhver engill sagði Jones þetta vera eitt það óheiðarlegasta sem hann hefur séð í íþróttum. Það er augljóst að Jon Jones fer gríðarlega mikið í taugarnar á Daniel Cormier. Jones sigraði Cormier í ársbyrjun 2015 og er það hans eina tap á ferlinum hingað til. Jones nýtir hvert tækifæri til að skjóta á Cormier og gera lítið úr honum. Rígur Cormier og Jones er einn sá skemmtilegasti sem sést hefur í UFC á undanförnum árum. Cormier virðir Jones sem íþróttamann en hreinlega þolir hann ekki vegna persónuleika hans. Þannig hefur það verið frá því þeir hittust fyrst mörgum árum áður en þeir áttu eftir að berjast. Kapparnir slógust á blaðamannafundi eins og vitleysingar nokkrum mánuðum áður en þeir áttu að berjast fyrst og hrauna reglulega yfir hvorn annan í fjölmiðlum. Cormier hefur sagt að Jones nái fram því versta úr honum. Eftir bardaga þeirra 2015 var ósættið ekki sett til hliðar og hafa þeir verið við sama heygarðshornið síðan þá. Sama hvernig fer í kvöld mun sigurvegarinn ekki vera besti léttþungavigtarmaður heims í augum margra. Skuggi Jon Jones hvílir enn yfir þyngdarflokknum enda flestir aðdáendir sannfærðir um að Jon Jones muni sigra bæði Cormier og Johnson þegar þar að kemur. Hvort sem það verður Cormier eða Johnson mun sigurvegarinn þurfa að vinna Jon Jones til að vera alvöru meistarinn í augum aðdáenda. UFC 210 fer fram í nótt og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Bein útsending hefst kl 2 og er bardagi Daniel Cormier og Anthony Johnson aðalbardagi kvöldsins.
MMA Tengdar fréttir Fyrstu upphitunarþættirnir fyrir UFC 210 Það er rosalegt bardagakvöld á dagskránni um næstu helgi en það kvöld verður að sjálfsögðu í beinni á Stöð 2 Sport. 5. apríl 2017 09:00 Johnson stal sæti meistarans í viðtali á ESPN Það gengur á ýmsu í nýjasta upphitunarþætti fyrir UFC 210. Til að mynda er pissað yfir allt klósettið hans Chris Weidman. 6. apríl 2017 22:00 Bardagakapparnir klárir í slaginn Hörkutólin sem berjast í UFC 210 um helgina eru búnir með fjölmiðlaskyldur sínar og klárir í að berjast. 7. apríl 2017 14:15 Mest lesið Dómari sleginn niður í kvennaleik Körfubolti Messi eyddi kvöldinu með Trump Fótbolti Elvar en ekki Friðriksson Körfubolti Óþægileg heimkoma af ÓL: Sátu fyrir henni og eltu upp að bílnum Sport Annar þjálfari hættur skömmu fyrir HM Fótbolti Hleypur kílómetra hring hundrað sinnum og stefnir á stigamet Sport Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn félögum sínum í Magdeburg Handbolti Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Íslenski boltinn Fær Barbie-útgáfu af sér fyrir Íslandsleikinn Fótbolti „Ég er bara ekki nógu gáfaður til að geta rýnt almennilega í þessa stöðu“ Handbolti Fleiri fréttir Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Leita að treyju félagsins sem Madonna klæddist árið 1990 Hleypur kílómetra hring hundrað sinnum og stefnir á stigamet Fær Barbie-útgáfu af sér fyrir Íslandsleikinn Sjáðu mörkin sem fengu stuðningsmenn Tottenham til að fara í hálfleik Dómari sleginn niður í kvennaleik Óþægileg heimkoma af ÓL: Sátu fyrir henni og eltu upp að bílnum Messi eyddi kvöldinu með Trump Dagskráin: Liverpool vill hefna, Formúlan af stað og mikil spenna í Bónus-deildinni Annar þjálfari hættur skömmu fyrir HM Elvar en ekki Friðriksson Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn félögum sínum í Magdeburg „Ég er bara ekki nógu gáfaður til að geta rýnt almennilega í þessa stöðu“ Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Skoruðu tvö á síðustu mínútu og fóru upp fyrir Hauka Árið enn fullkomið hjá sveinum Guðjóns Vals Markaveisla þegar ÍBV vann silfurstrákana Algjört hrun Spurs sem er stigi frá fallsæti Uppgjörið: Valur - Fram 27-35 | Meistararnir fóru illa með toppliðið RÚV má gera fleiri auglýsingahlé í hverjum leik á HM Wirtz snúi aftur gegn Wolves Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa manneskju ekki aftur“ Bræður settir í bann en fyrirliðinn sér tækifæri í skandalnum Kani í mark Víkinga Keppnir í hættu vegna stríðsins „Ekki svo að við séum að setja stein í götu hennar af því hún eignaðist barn“ Hafnaboltinn kallar á NFL-leikstjórnandann Líkir íslenska körfuboltalandsliðinu við Atlanta Hawks Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Sjá meira
Fyrstu upphitunarþættirnir fyrir UFC 210 Það er rosalegt bardagakvöld á dagskránni um næstu helgi en það kvöld verður að sjálfsögðu í beinni á Stöð 2 Sport. 5. apríl 2017 09:00
Johnson stal sæti meistarans í viðtali á ESPN Það gengur á ýmsu í nýjasta upphitunarþætti fyrir UFC 210. Til að mynda er pissað yfir allt klósettið hans Chris Weidman. 6. apríl 2017 22:00
Bardagakapparnir klárir í slaginn Hörkutólin sem berjast í UFC 210 um helgina eru búnir með fjölmiðlaskyldur sínar og klárir í að berjast. 7. apríl 2017 14:15