Innlent

Sigmundur Davíð mætir í Víglínuna

Ritstjórn skrifar
Gestir Heimis Más Péturssonar fréttamanns í Víglínunni í opinni dagskrá og beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi klukkan tólf tuttugu verða Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður Framsóknarflokksins, Björt Ólafsdóttir umhverfisráðherra og Þórunn Sveinbjarnardóttir fyrrverandi umhverfisráðherra og formaður BHM.

Í næstu viku verður ár liðið frá því frægt viðtal var tekið við Sigmund Davíð um Panamaskjölin sem síðar leiddi til þess að hann sagði af sér sem forsætisráðherra og boðað var til kosninga áður en kjörtímabilið var úti. Þeir örlagaatburðir verða ræddir sem og fleira við Sigmund Davíð.

Þá er ljóst að Íslendingar munu eiga erfitt með að uppfylla Parísarsamkomulagið í loftslagsmálum og staðan á vinnumarkaði fékk á sig nýja mynd eftir að Samtök atvinnulífsins og Alþýðusambandið sömdu um að framlengja kjarasamninga um eitt ár og skoruðu um leið á þá sem eftir eiga að semja við ríki og sveitarfélög á þessu ári að halda sig innan ramma SALEK samkomulagsins.

Horfa má á Víglínuna í beinni útsendingu á Vísi klukkan 12:20.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×