Björguðu tveimur skipverjum við Skagafjörð Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. mars 2017 22:07 Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna málsins. Vísir/Anton
Landhelgisgæslunni barst um áttaleytið í kvöld neyðarkall frá báti á utanverðum Skagafirði. Leki var kominn að bátnum og útlit fyrir að skipverjarnir tveir þyrftu að yfirgefa hann. Samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni hefur mönnunum tveimur nú verið bjargað. Öllum nærliggjandi skipum var beint að bátnum auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF og björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Skagaströnd og Siglufirði héldu á vettvang. Einnig var Herkúlesflugvél frá bandaríska flughernum send til leitar. Herkúlesvélin var komin á vettvang tíu mínútum síðar og sveimaði yfir svæðinu uns mönnum hafði verið bjargað. Klukkan 21.18 kom færeyska loðnuskipið Finnur Fríði að björgunarbátnum og fáeinum mínútum síðar hafði mönnum tveimur verið bjargað um borð. Á sama tíma kom þyrla Landhelgisgæslunnar á staðinn og flutti hún mennina í land. Í tilkynningu Landhelgisgæslunnar er áhöfnum þeirra skipa sem tóku þátt í björguninni þakkað fyrir skjót og fagleg viðbrögð. Sannast hafi hve mikilvægt er að sjómenn hlusti á neyðarrásina 16.
Skagaströnd Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira