Málfríður Erna Reykjavíkurmeistari í tíunda sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. febrúar 2017 14:45
Valskonan Málfríður Erna Sigurðardóttir vann tímamótatitil í Egilshöllinni í gærkvöldi þegar Valur varð Reykjavíkurmeistari kvenna í knattspyrnu. Málfríður Erna og félagar hennar í Val unnu þá 3-1 sigur á Fylki eftir að hafa lent 1-0 undir strax á fyrstu mínútu. Málfríður Erna Sigurðardóttir snéri aftur í sitt uppeldisfélag í vetur eftir að hafa spilað tvö síðustu tímabil með Breiðabliki þar sem hún varð bæði Íslandsmeistari (2015) og bikarmeistari (2016). Málfríður Erna varð Reykjavíkurmeistari í tíunda skipti í gær en þær Dóra María Lárusdóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir hafa einnig unnið þennan titil oft á ferlinum. Málfríður Erna varð einnig Reykjavíkurmeistari með Val 2001, 2002, 2003, 2004, 2005, 2008, 2010, 2011 og 2013. Hún missti af Reykjavíkurmeistaratitlinum árin 2009, 2012 og 2014 og svo í fyrra þegar hún lék með Breiðabliki. Það má deila um það hvort að Valskonan Kristín Ýr Bjarnadóttir hafi líka orðið Reykjavíkurmeistari í tíunda sinn í gær en á pappírnum varð hún það þó ekki sem leikmaður. Hún er aðstoðarþjálfari liðsins og fæ því titilinn á ferilskrána sem slíkur. Kristín Ýr var á varamannabekk Valsliðsins í úrslitaleiknum en kom ekkert við sögu. Hún spilaði ekki eina mínútu í Reykjavíkurmótinu í ár. Kristín Ýr tók þátt í níunda Reykjavíkurmeistaratitli Vals í fyrra en þá vantaði hinsvegar þær Málfríði Ernu og Dóru Maríu Lárusdóttur. Dóra María Lárusdóttir varð Reykjavíkurmeistari í níunda sinn í gær og því ekki ólíklegt að sá tíundi detti inn á næstu árum.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira