Ekki ákveðið hvenær yfirheyrslur fara næst fram Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 13. febrúar 2017 12:13 Maðurinn sem er í haldi vegna málsins er hér leiddur af lögreglu úr Héraðsdómi Reykjaness. Vísir/Anton Brink
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær maðurinn sem grunaður er um að hafa ráðið Birnu Brjánsdóttur bana í lok síðasta mánaðar verður næst yfirheyrður. Hann var síðast yfirheyrður á föstudag en gæsluvarðhaldsúrskurðurinn yfir honum rennur út á fimmtudaginn kemur. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, segist þó telja að yfirheyrslur fari fram áður úrskurðurinn rennur út, en telja má líklegt að lögregla fari fram á áframhaldandi varðhald yfir manninum. Aðspurður segir hann rannsókn málsins í fullum gangi þó fátt nýtt hafi komið fram um helgina. Þá er niðurstaðna úr lífsýnarannsókn, sem send voru utan, enn beðið. Grímur segir málið í forgangi úti og að bundnar séu vonir að þær liggi fyrir í þessari viku. Grímur segir jafnframt að búast megi við að rannsóknin taki nokkrar vikur til viðbótar. Verið sé að safna gögnum sem síðan verða send héraðssaksóknara. Lögregla og ákæruvald hafa frá handtöku tólf vikur til að gefa út ákæru. Maðurinn sem grunaður er, skipverji á togaranum Polar Nanoq, var handtekinn 18. janúar síðastliðinn.
Birna Brjánsdóttir Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira