Heilsa

Sjáðu fyrsta þáttinn: Meistara­mánuðurinn hefst í næstu viku

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fyrsti þáttur Meistaramánuðar 2017 á Stöð 2. Þátturinn er í umsjón Pálmars Ragnarssonar. Viðmælendur eru Anna Steinsen, markþjálfi og eigandi KVAN, Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur, Viðar Halldórsson, lektor í félagsfræði og Björn Berg Gunnarsson, fræðslustjóri Íslandsbanka.

Pálmar verður í forsvari fyrir meistaramánuði Íslandsbanka sem verður að þessu sinni í febrúar.

Meistaramánuður hóf göngu sína árið 2008 en hefur ekki verið haldinn formlega síðustu tvö ár. Pálmar segir í samtali við Vísi að markmiðið sé að gera þetta að stærsta meistaramánuði frá upphafi.

Til að taka þátt er hægt að skrá sig á meistaramanudur.is og þar geta þátttakendur útbúið sér dagatöl til þess að halda utan um markmiðin sín.

Stöð 2 og Vísir mun greina ítarlega meistaramánuðinum en á miðvikudögum verða sérstakir sjónvarpsþættir á dagskrá á Stöð 2 og verða þeir í umsjón Pálmars. Þættirnir verða einnig aðgengilegir á Vísi allan mánuðinn.

Hér að ofan má sjá fyrsta þáttinn sem var frumsýndur á Stöð 2 í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.