Skoðun

Útivist í borgarumhverfi

Hjálmar Sveinsson skrifar
Það eru magnaðir tímar sem við lifum. Þótt komið sé fram í miðjan janúar er varla kominn vetur á höfuðborgarsvæðinu. Einstök tíð til útivistar. Reykvíkingar hafa svo sannarlega kunnað að njóta þess. Þeir sem eiga leið um útivistarsvæðin okkar í Fossvogsdal, Elliðaárdal og Laugardal hafa séð ótal hópa ganga sér til heilsubótar, skokka, hlaupa og hjóla. Margir eru með höfuðljós. Það er ævintýralegt að sjá alla þessa ljósaröð kljúfa janúarmyrkrið.

Undanfarinn áratug hefur verið byggt upp víðfeðmt og öruggt stígakerfi fyrir alla þessa hreyfiþörf Reykvíkinga. Síðasta vor voru opnaðar göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaárnar, rétt við gamla rafveituhúsið. Haustið 2013 voru opnaðar brýr yfir Elliðaárósa. Þessar brúarframkvæmdir hafa reynst frábærar samgöngubætur. Á næstu misserum verður lögð hjóla- og göngubrú yfir Elliðaárnar upp í Víðidal þar sem heitir Dimma og það mun koma brú yfir Fossvoginn sem tengir Kársnesið í Kópavogi við Vatnsmýrarsvæðið og þar með háskólana, Landspítalann, nýjan og gamlan, og miðborgina. Þetta eru miklir brúartímar.

Hver hefði trúað því fyrir cirka 10 árum að þörf væri á svo umfangsmiklu stíga- og brúakerfi? Hver hefði trúað því að Reykjavík gæti verið frábær útivistarborg, hver hefði trúað því að svo margir Reykvíkingar nytu þess að hreyfa sig, finna fyrir veðrinu, myrkrinu, rigningunni úti í borginni?

Hreyfing er holl. Það hefur lengi verið vitað. Í nýlegri skýrslu breska arkitektafélagsins kemur fram að sá sem hreyfir sig 150 mínútur á viku minnkar líkurnar á að hann fái hjartaáfall, sykursýki 2 eða deyi ótímabærum dauða. Einnig koma fram alveg skýr tengsl milli borgarskipulags, gatnahönnunar, grænna svæða og lýðheilsu. Fólk gengur frekar milli staða í sínu hverfi ef borgargöturnar eru aðlaðandi og öruggar.

Og nú hefur ný rannsókn leitt í ljós að markviss útivist er enn líklegri en líkamsrækt innandyra til að vinna gegn hjarta- og æðasjúkdómum og veikindum sem geta verið fylgikvillar streitu og álags. Möguleikar borgarbúa til útivistar skipta því miklu máli.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×