Saga rallsins á Íslandi í 40 ár í bíó Finnur Thorlacius skrifar 5. desember 2016 15:33 Ralláhugamenn hafa fengið hvalreka í mynd Braga og ættu ekki að láta mynd hans framhjá sér fara.
Bragi Þórðarson hefur unnið metnaðarfullt mynd um sögu rallaksturs á Íslandi sem spannar 40 ár. Bragi byrjaði að vinna að þessari mynd fyrir tæpu ári. Í myndinni eru viðtöl við alla helstu keppendur í 40 ára rallsögunni en myndin er skipt upp í fjögur 10 ára tímabil. Myndin sem sýnd verður í bíó Paradís laugardaginn 10. desember verður tveggja tíma löng en sennilegt er að styttri útgáfa verður sýnd á RÚV í komandi framtíð. Fjallað er ítarlega um rallsöguna hér á landi, allt frá því rallið byrjaði árið 1975 en þá mátti meðal annars ekki aka yfir hámarkshraða á sérleiðum. Einnig er fjallað um helstu þróun, bæði í reglum, bílum, öruggisbúnaði og fleira. Helstu styrktaraðilar myndarinnar er Askja, DS Lausnir, Bíljöfur, Bílar og Hjól, Bílbót, Green Diamond og Iðnvélar. Allt eru þetta fyrirtæki sem tengjast rallinu þar sem eigendur eða starfsmenn þeirra hafa verið að keppa.
Mest lesið „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Innlent Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Innlent Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Erlent Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Borgin verði ítrekað af viðburðum vegna gjaldtöku Innlent