Breyttir tímar framundan hjá JÖR Ritstjórn skrifar 9. desember 2016 11:30 Guðmundur Jörundsson og þau Jóhann Kristófer og Steinunn Eyja. Saga Sigurðardóttir/Kjartan Hreinsson
Miklar breytingar á rekstri JÖR hafa verið í gangi seinustu misseri en í vikunni var tilkynnt um tvo nýja yfirhönnuði hjá fyrirtækinu. Steinunn Eyja Halldórsdóttir verður yfirhönnuður kvenfatnaðar og Jóhann Kristófer Stefánsson verður yfirhönnuður hettafatnaðar. Þau eru bæði nýútskrifuð úr Listaháskóla Íslands. Guðmundur Jörundsson, stofnandi JÖR, verður áfram listrænn stjórnandi merkisins. Hann mun ennþá sjá um yfirsýn samhliða yfirhönnuðunum. Breytingarnar markar skil hjá fyrirtækinu. „Þetta er einskonar endurfæðing. Við höfum gengið í gegnum frábært en erfitt ár fullt af umsviftingum. Við erum flutt, með nýja orku, nýja stefnu, nýjar verslanir, ferskt fólk. Við erum drullufersk,“ segir Guðmundur. En munu áherslurnar breytast hjá JÖR í kjölfarið? „Já, þeim er ætlað að hræra í þessu og auðvitað eru þau valin inn miðað við þær áherslubreytingar sem liggja og hafa legið fyrir. Árið hefur farið í algjöra endurskipulagninu, næsta ár fer í uppbyggingu og framkvæmd þeirra. Viðskiptavinir mega eiga von á tveimur nýjum verslunum, nýjum línum, meira streetwear og meira gaman.“ Það er greinilegt að það eru spennandi tímar framundan hjá JÖR á næsta ári og það verður gaman að fylgjast með því.
Mest lesið 10 atriði sem koma þér á óvart þegar þú eignast börn Glamour Louis Vuitton frumsýnir samstarfið við Supreme Glamour Skór sem fá þig til að hlæja Glamour Chanel byggði geimfar fyrir tískusýningu sína Glamour Þrjár góðar peysur í kuldanum Glamour Fangaði augnblikin á Instagram fyrir Vogue Glamour Emmy 2015: Best klæddar á rauða dreglinum Glamour Tulipop bestu nýliðarnir Glamour "Ég vil ekki hylja mig lengur“ Glamour Engar fyrirsætur í nýjustu herferð Alexander Wang Glamour