SsangYong til Bandaríkjanna árið 2020 Finnur Thorlacius skrifar 10. október 2016 15:47 SsnagYong Tivoli hefur selst ágætlega hér á landi.
S-kóreski jeppa- og jepplingaframleiðandinn SsangYong ætlar að hefja sölu bíla sinna í Bandaríkjunum árið 2020 og mun í fyrstu tefla fram jepplingi og jeppa á þessum krefjandi bílamarkaði. Bílarnir sem um ræðir eru nýjar kynslóðir Tivoli jepplingsins og jeppans Korando og verða báðir bílarnir í boði með framhjóladrifi og fjórhjóladrifi vestanhafs. Korando jeppinn hefur verið í framleiðslu hjá SsangYong allt frá árinu 1983 en Tivoli jepplingurinn er öllu yngri bíll og var kynntur til sögunnar í byrjun síðasta árs. Hann hefur náð mikilli sölu í Evrópu sem komið hefur bæði SsangYong mönnum á óvart sem og öðrum bílaframleiðendum, en hann hefur þótt á afar samkeppnishæfu verði miðað við stærð og búnað. SsangYong fyrirtækið er í eigu hins indverska Mahindra & Mahindra, eða frá árinu 2011 og vélarnar í þessa tvo nýju bíla munu koma úr smiðju þess. Eru það 1,5 og 2,0 lítra fjögurra strokka vélar sem eru 162 og 220 hestöfl. SsangYong fyrirtækið smíðaði upphaflega rútur en kynnti sinn fyrsta jeppa árið 1974 í samstarfi við American Motors í Bandaríkjunum. SsangYong hefur líka bundist samstarfi við Mercedes Benz sem hefur útvegað bæði vélar og drifbúnað í suma bíla SsangYong. Eftir kaup Mahindra & Mahindra hefur gengið betur og betur í rekstri SsangYong og mun fyrirtækið líklega skila hagnaði í ár eftir margra ára taprekstur.
Mest lesið Dæmdur fyrir brot gegn fimmtán börnum í viðbót Innlent Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu Innlent Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi Innlent Sánuferðir hafi svipuð áhrif á hjartað og líkamsrækt Innlent Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Erlent Sýknaðir af ákæru fyrir að brjótast inn í eigið hús Innlent „Nú er verkstjórn tekin við sem gengur í málið“ Innlent Úlfar heldur fullum launum í heilt ár Innlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Erlent