Conor var ekki boðið í afmælið hjá J-Lo en mætti samt og sló í gegn Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. október 2016 13:30 Jennifer Lopez var mjög ánægð með að fá Conor McGregor í afmælið sitt. mynd/instagram
John Kavanagh, þjálfari Gunnars Nelson og írska Íslandsvinarins Conors McGregors, tjáir sig í fyrsta skipti opinberlega um hvað gerðist í Las Vegas fyrir tveimur mánuðum síðan þegar hann, Conor og Cristiano Ronaldo mættu í 47 ára afmælið hjá poppdrottningunni Jennifer Lopez. Það gerir Kavanagh í ítarlegu við írska blaðið Independent þar sem þessi magnaði bardagaíþróttaþjálfari fer yfir ferilinn og talar meðal annars um fyrstu komu sína til Íslands, kynnin af Gunnari Nelson og segir frá því að hann var næstum því fluttur til Íslands. Mikla athygli vakti þegar Conor McGregor hitti fótboltagoðið Cristiano Ronaldo í Las Vegas fyrir tveimur mánuðum síðan þegar Írinn var að undirbúa sig fyrir bardagann gegn Nate Diaz. Ronaldo kom þá á æfingu hjá Conor þar sem þeir spjölluðu saman og tóku nokkrar myndir af sér berum að ofan. My brother Ronaldo dropped by the gym today! He is an animal. Thank you @cristiano, much respect! I will see you for that Forbes number 1 spot next year. #ThisIsTheMacLife A photo posted by Conor McGregor Official (@thenotoriousmma) on Jul 24, 2016 at 5:01pm PDT „Ég talaði ekki við Ronaldo fyrr en seinna sama kvöld,“ segir Kavanagh í viðtalinu en hann hélt sig til hlés á meðan ofurstjörnunnar voru að spjalla og sitja fyrir. Hittingurinn var myndaður fyrir Youtube-þáttinn The Mac life sem Conor var með í kringum bardagann. Kavanagh talaði ekki við Ronaldo fyrr en í afmælisveislu Jennifer Lopez um kvöldið. Cristiano Ronaldo var boðið í veisluna en Írarnir höfðu ekki fengið boð um að mæta til hennar. Blaðamaðurinn sem tekur viðtalið við Kavanagh segir: „Þetta er það sem ruglar mig því það er nokkuð augljóst í þættinum að Conor var ekkert boðið í þessa veislu.“ Kavanagh svarar: „Það er rétt.“ Blaðamaðurinn vildi þá vita af hverju Conor og Kavanagh enduðu í afmæli Jennifer Lopez. „Þetta er bara hinn lúmski Conor. Svona hluti gerði hann í æsku. Hann sagði bara: „Ekkert mál, ég kem með,“ og Ronaldo var bara: „Ehhh Allt í lagi.“ „Við spurðum okkur allir hvernig Ronaldo gæti boðið okkur í þetta afmæli og hverjir myndu vera þarna. Þegar við vorum komnir í bílinn var ég hræddur um að þetta væru skelfileg mistök og okkur yrði hent út af einhverjum öryggisverði,“ segir Kavanagh. Svo varð nú aldeilis ekki.Jennifer Lopez var himinlifandi að fá Conor í afmælið sitt en Kavanagh segir frá því að tónlistar- og kvikmyndastjarnan kom hlaupandi að bardagakappanum öskrandi eins og skólastelpa. „Conor McGregor!“ hrópaði hún að sögn Kavanagh. „Takk fyrir að koma. Dönsum!, sagði hún. Hún dró Conor síðan á dansgólfið þar sem þau byrjuðu að dansa og ég fór að hugsa að þetta væri bara enn ein klikkaða sagan sem maður gæti sagt.“ Conor var ekki boðið í afmælið en samt stal hann sviðsljósinu eins og hann gerir hvar sem hann stígur niður fæti. Írinn átti góða daga í Vegas og vann síðan bardagann gegn Nate Diaz. En það var þá sem Kavanagh talaði loks við Cristiano Ronaldo. Happy birthday Miss Jennifer Lopez! What a woman! What a night! @jlo A photo posted by Conor McGregor Official (@thenotoriousmma) on Jul 25, 2016 at 1:58am PDT „Ronaldo kemur til mín og segir mér að hann les allt sem ég skrifa,“ segir Kavanagh sem skrifar reglulega pistla um líf sitt, bardagakvöldin með Conor og bardagaíþróttir í Independent. Hann hefur auk þess gefið út ævisögu. „Ronaldo segist líka fylgjast með mér á Instagram. Eina sem ég hugsaði var að ég gæti ekki beðið eftir að segja pabba mínum frá þessu.“ „Hann kom alltaf aftur og aftur til mín sama hversu oft við slitum samræðum. Ég var kannski í öðrum enda hússins en hann kom bara aftur til mín. Á einum tímapunkti sagði kærastan mín við mig: „Það er ofurstjarna að áreita þig!“
MMA Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Ofursunnudagur á Sýn Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Falko farinn frá ÍR Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Selfoss þakkaði sæti í Olís-deildinni með því að vinna meistarana í fyrsta leik Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Gasly óvænt á ráspól í fyrsta sinn Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Eyjakonur unnu opnunarleikinn Sjá meira