Lilja Rafney lýsir yfir stuðningi við sjókvíaeldi Jakob Bjarnar skrifar 6. október 2016 12:37 Lilja Rafney ætti líkast til erfitt uppdráttar í kjördæmi sínu ef hún talaði fyrir yfirlýstum stefnumiðum Vinstri grænna. Gunnar Bragi kynnti í morgun áætlun um aukið eftirlit, starfstöð verður sett upp á Ísafirði.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, sem skiptar efsta sæti á lista VG í Norðurvesturkjördæmi, ritar grein sem birtist á bb.is þar sem hún lýsir yfir stuðningi við fiskeldi. „Fiskeldi er ný og blómstrandi atvinnugrein á Vestfjörðum. Aðrir landshlutar hafa margra ára jákvæða reynslu af fiskeldi á landi sem hefur skapað mörg störf, bæði fyrir konur og karla, faglærða og ófaglærða. Á Vestfjörðum sunnan Dýrafjarðar er óheillaþróun síðustu ára að snúast við, fólki fjölgar og fær atvinnu við hæfi," skrifar Lilja Rafney meðal annars.Stóraukið sjókvíaeldi fyrirhugaðFyrirhugað er stóraukið sjókvíaeldi við Íslandsstrendur. Í fyrra voru framleidd 2.500 þúsund tonn af laxi og regnboga en á þessu ári ætla menn að framleiða 8.000 tonn. Landsamband veiðifélaga hefur lýst yfir miklum áhyggjum af þessari þróun og segja að þar sé verið að tefla villtum laxastofnum í hættu með genablöndun og ýmsum smitsjúkdómum sem fylgja slíku eldi. Komið hefur fram að leyfi til til að hefja laxeldi kosti 200 milljónir í Noregi meðan sambærileg leyfi hér kosta 300 þúsund. Enda hafa norskir laxeldismenn fjárfest í slíkri starfsemi á Íslandi.Hilmar Hansson fer framarlega í stórum hópi sem berst mjög gegn fyrirhuguðum áformum um stóraukið laxaeldi við Íslandsstrendur.Þá hefur einnig verið vakin athygli á því að slíkri starfsemi fylgir verulegur sóðaskapur þar sem vistkerfinu er teflt í tvísýnu. Í athugasemdakerfi við leiðara sem Magnús Guðmundsson menningarblaðamaður ritaði í Fréttablaðið nýverið hafa menn tekist á. Þar hafa einkum þeir Höskuldur Steinarsson framkvæmdastjóri Landsambands fiskeldisstöðva og Hilmar Hansson veiðimaður sem hefur hefur sett fram gögn til að styðja mál sitt. Hér getur til að mynda að líta neðansjávarmyndir sem David Ainsley, sem er sjávarlíffræðingur og kafari, tók af sjávarbotni við Skotland, undir laxeldiskví. Þar hefur myndast þykkt lag af úrgangi og er svæðið þar undir og gott betur dautt.Stangveiðimenn eru reyndar afar ósáttir með ummæli Höskuldar í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær, þar sem hann sagði að barátta þeirra snérist um hagsmuni og peninga en ekki náttúruvernd. Þar á bæ leggja menn á ráðin um hvernig bregðast megi við þessu en mikil reiði er ríkjandi í Facebookhópnum Veiðidellan er frábær.Sérkennileg mótmæli við atvinnuuppbyggingu En, svo áfram sé vitnað Lilju Rafney þá segir hún að mitt í þessum jákvæðu fréttum sem hún telur aukið eldi vera berist mótmæli frá þeim sem telja „fiskeldi í sjó ógna lífríkinu á óafturkræfan hátt og öðrum sem segja að fiskeldi í sjó takmarki notkunarmöguleika þeirra á hafinu.“ Lilja Rafney telur nauðsynlegt að hlusta á þessar raddir með það fyrir augum að sætta sjónarmið því hafið sé okkar sameiginlega auðlind og hana beri að virða og nýta með sjálfbærum hætti. „Árið 2004 var farið í víðtæka aðgerð þar sem drjúgum hluta strandlengjunnar var lokað fyrir sjókvíaeldi á laxfiskum. Þessi aðgerð var varúðarráðstöfun, ætluð til verndar dýrmætum villtum laxastofnum. Þannig var öllum stærstu farvegum villtra laxa hlíft, en í fjarlægðinni felst mikil vernd gegn mögulegri erfðablöndun villtra laxa og eldislaxa. Þrátt fyrir þetta hafa andstæðingar sjókvíaeldis enn uppi mótmæli og af því tilefni hafa verið nefndar tæknilegar lausnir eins og eldi á landi og notkun geldhrogna,“ segir Lilja Rafney.Grímur Atlason er einn þeirra sem furðar sig mjög á pistli Lilju Rafneyjar.Umhverfisvernd og íslensk pólitík Pistill þingkonunnar, oddvita VG í Norðvesturkjördæmi, hefur reynst umdeildur og mörgum þykir hann stangast verulega á við yfirlýsta umhverfisstefnu VG. Grímur Atlason framkvæmdastjóri, sem starfaði um hríð innan VG, furðar sig á þessu á sinni Facebooksíðu. „Það er þetta með VG og umhverfisverndina. Það er falleg framtíð á Bakka og þegar villti laxinn verður útdauður. Kannski fáum við borpall á Drekann líka? Eruð þið að kidda mig?“ Háðskar umræður hafa sprottið á síðu Gríms og er þar meðal annars bent á að VG ætti býsna erfitt uppdráttar í kjördæmi Lilju Rafneyjar ef hún færi að tala fyrir þeim sjónarmiðum sem sett eru fram í stefnuskrá Vinstri grænna. Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti nú í dag fyrirætlanir stjórnvalda um að koma setja fram heildar stefnumótun fyrir fiskeldi á Íslandi og að rannsóknir, vöktun og eftirlit skuli aukið. Sérstakri stöð í því skyni verður komið fyrir á Ísafirði.
Tengdar fréttir Eric Clapton verður bara að fara eitthvað annað að veiða Stangveiðimenn sjá fyrir sér óafturkræft umhverfisslys samfara auknu laxeldi. 30. september 2016 10:59 Þeir eru að passa peningana sína en ekki í náttúruvernd Framkvæmdastjóri Landssambands fiskeldisstöðva segir að það sé ekki náttúruvernd heldur fjárhagslegir hagsmunir sem drífi fulltrúa laxveiða áfram í áróðursstríði gegn laxeldi. 5. október 2016 20:15 Skammsýni Við sem erum komin á miðjan aldur eða eldri munum þá tíma þegar refa- og minkabúskapur átti að koma íslenskum sveitum til bjargar. 3. október 2016 07:00 Miðstöð fiskeldis verður á Ísafirði Sviðsstjóri fiskeldismála hjá Hafrannsóknastofnun verður staðsettur á Ísafirði, ásamt sérfræðingum, samkvæmt ákvörðun Gunnars Braga Sveinssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 6. október 2016 12:16 Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira
Eric Clapton verður bara að fara eitthvað annað að veiða Stangveiðimenn sjá fyrir sér óafturkræft umhverfisslys samfara auknu laxeldi. 30. september 2016 10:59
Þeir eru að passa peningana sína en ekki í náttúruvernd Framkvæmdastjóri Landssambands fiskeldisstöðva segir að það sé ekki náttúruvernd heldur fjárhagslegir hagsmunir sem drífi fulltrúa laxveiða áfram í áróðursstríði gegn laxeldi. 5. október 2016 20:15
Skammsýni Við sem erum komin á miðjan aldur eða eldri munum þá tíma þegar refa- og minkabúskapur átti að koma íslenskum sveitum til bjargar. 3. október 2016 07:00
Miðstöð fiskeldis verður á Ísafirði Sviðsstjóri fiskeldismála hjá Hafrannsóknastofnun verður staðsettur á Ísafirði, ásamt sérfræðingum, samkvæmt ákvörðun Gunnars Braga Sveinssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 6. október 2016 12:16