Lærðu rangstöðuregluna og trúðu á ást við fyrstu sýn Ritstjórn skrifar 2. september 2016 12:15 Glamour/Getty
Victoria Beckham prýðir forsíðu októberblað breska Vogue þar sem hún er í skemmtilegu viðtali og meðal annars er að finna einlægt bréf sem hún skrifar aftur í tímann, til Victoriu á táningsaldri sem var í námi í listaskóla og fannst hún ekki alveg passa inn. „Lærðu meira um fótbolta, sérstaklega rangstöðuregluna," segir Victoria sem hefur þurft að horfa á ansi marga fótboltaleiki í gegnum tíðina í gegnum mann sinn, David Beckham. „Og já, ást við fyrstu sýn er til. Það gerist fyrir þig í leikmannasvítunni hjá Manchester United - þó að þú sért smá drukkin og því eru smáatriðin smá á reyki," segir Beckham um þeirra fyrsta hitting. „Á meðan aðrir fótboltamenn standa á barnum með vinum sínum þá sérð þú David til hliðar með fjölskyldu sinni (hann er ekki einu sinni í byrjunarliðinu á þessum tímapunkti - þú ert sú sem er fræg.) Og hann er með svo fallegt bros. Þú ert líka náin fjölskyldu þinni og þér finnst þið passa vel saman. Hann mun biðja um símanúmerið þitt. (Hann á ennþá flugmiðann á milli London og Manchester sem númerið er skrifað á).“ Svo talar hún einnig um óöryggið sem hún glímdi við í skóla þar sem henni fannst hún aldrei passa almennilega inn. „Þú heldur að skólastjórinn hafi sett þig aftast í skólasýninguna því að þú sért ekki nógu góð til að vera fremst.“ Skemmtilegt viðtal við flottan fatahönnuð og tískufyrirmynd! Skjáskot/Vogue
Glamour Tíska Mest lesið Balenciaga fær innblástur frá Bernie Sanders Glamour Pallíetturnar eru heitar um jólin Glamour Stjarna fagnar 30 ára afmæli í dag Glamour Heiða bar af á rauða dreglinum Glamour Heiða Rún vekur athygli á tískuvikunni í London Glamour Leðurjakkar, rúllukragar og netasokkar á fyrsta degi Airwaves Glamour Airwaves: Síðir frakkar og bros á vör Glamour Fimmta Vogue-forsíða Cara Delevnigne Glamour Af tískupallinum og í partýið Glamour Burt með bjúg, þreytuleg augu og þurra húð Glamour