Hlynur til Stjörnunnar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. ágúst 2016 19:00 Hlynur í góðum félagsskap á EM í fyrra. vísir/valli
Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, mun leika með Stjörnunni í Domino's deild karla á komandi tímabili. Þetta staðfesti Hrafn Kristjánsson, þjálfari Stjörnunnar, í samtali við Kjartan Atla Kjartansson í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hlynur verður formlega kynntur til leiks hjá Stjörnunni seinna í kvöld. Hlynur hefur undanfarin sex ár leikið sem atvinnumaður með Sundsvall Dragons í Svíþjóð. Félagið varð hins vegar gjaldþrota í vor og Hlynur þurfti þá að finna sér nýja vinnuveitendur. Það þarf ekki að fjölyrða um hversu mikill styrkur þetta er fyrir Stjörnuna en Hlynur er þrautreyndur og öflugur á báðum endum vallarins. Stjarnan endaði í 2. sæti Domino's deildarinnar í fyrra en féll úr leik fyrir Njarðvík í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar.Hlynur og félagar í Snæfelli fagna Íslandsmeistaratitlinum 2010 eftir sigur á Keflavík í oddaleik.vísir/daníelHlynur, sem er 34 ára, lék með Snæfelli áður en hann fór til Svíþjóðar og varð tvöfaldur meistari með Hólmurum tímabilið 2009-10. Tímabilið á eftir varð hann svo sænskur meistari með Sundsvall. Hlynur hóf feril sinn í meistaraflokki með Skallagrími í Borgarnesi en gekk til liðs við Snæfell 2002. Hlynur hefur verið fyrirliði íslenska landsliðsins undanfarin ár en hann leikur sinn 98. landsleik í kvöld þegar Ísland mætir Sviss í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2017.Hægt er að fylgjast með beinni textalýsingu frá leik Íslands og Sviss með því að smella hér.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira