Landhelgisgæslan hafði afskipti af tveimur skipverjum undir áhrifum Birta Svavarsdóttir skrifar 25. ágúst 2016 21:32 Áhöfn flugvélar Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, varð fyrst vör við handfærabátinn í gær. vísir/vilhelm
Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar hafði nú síðdegis afskipti af handfærabát sem var við veiðar undan Ströndum og hafði verið vísað til næstu hafnar af Landhelgisgæslunni. Voru skipverjar bátsins, tveir menn færðir til sýnatöku vegna gruns um að vera undir áhrifum við stjórn bátsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni nú í kvöld. Landhelgisgæslan hafði fyrst afskipti af bátnum í gær þegar flugvél Landhelgisgæslunnar kom að bátnum í eftirlitsferð sinni. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafði orðið bátsins vör í eftirlitskerfum sínum og séð að ekki virtist allt með felldu varðandi haffæri og lögskráningu bátsins. Voru skipverjum bátsins þegar gefin fyrirmæli um að halda í land en þrátt fyrir ítrekuð fyrirmæli Landhelgisgæslunnar sinntu skipverjar bátsins ekki þeim fyrirmælum. Því var þyrla Landhelgisgæslunnar send á Norðurfjörð á Ströndum í dag, og í samstarfi við lögregluna á Vestfjörðum var tekið á móti bátnum er hann kom til hafnar um fimmleytið í dag. Vaknaði samstundis grunur um að skipverjar væru ekki allsgáðir og því var ákveðið að flytja þá með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Hólmavíkur til sýnatöku. Landhelgisgæslan og lögreglan vinna nú að rannsókn málsins.
Fréttir af flugi Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira