Verk um íslenska hvunndagshetju Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 11. ágúst 2016 09:00 María Reyndal leikstýrir verkinu Sóley Rós sem frumsýnt verður 10. september. Vísir/Ernir „
Leikverkið Sóley Rós ræstitæknir er sannsögulegt verk og byggt á viðtölum við raunverulega íslenska hvunndagshetju sem hefur átt lygilegt lífshlaup og kynnst miklu mótlæti sem myndi láta hvern mann kikna,“ segir María Reyndal, leikstjóri og einn af höfundum verksins Sóley Rós, sem frumsýnt verður 10. september í Tjarnarbíói. „Hugmyndin kviknaði út frá vinkonu minni sem var að vinna fyrir norðan. Þar kynntist hún konu sem hefur alveg ótrúlega merkilega sögu að segja,“ segir María. María Reyndal ásamt Sólveigu Guðmundsdóttur fengu styrk frá leiklistarráði og hófu fljótlega uppsetningu verksins en í sameiningu skrifuðu þær leikverkið, eftir að hafa tekið viðtölin sem verkið byggir á. „Sóley Rós fjallar um einstaka fjörutíu og tveggja ára móður, ömmu, eiginkonu og ræstitækni. Hún er einstök persóna sem hægt er að líkja við Bjart í Sumarhúsum. Þetta er virkilega fyndið og skemmtilegt leikrit, á sama tíma og verkið er mjög átakanlegt,“ segir María en æfingar á verkinu hefjast í vikunni. Að sögn Maríu er líklegt að sagan höfði til stórs hóps þar sem verkið er fyndið en jafnframt mjög hjartnæmt, tekur á samtíma okkar og málefnum sem við öll höfum skoðanir á og varða okkur öll. Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson koma til með að leika aðalhlutverkin í sýningunni. En óhætt er að segja að útkoma sýningarinnar sé spennandi. „Við Sólveig unnum verkið alfarið upp úr viðtölum og einungis nöfnum er breytt. Við ætluðum fyrst að byggja verkið á viðtölum við fleiri konur en svo var þessi saga svo heilsteypt og sterkt að við ákváðum í kjölfarið að byggja leikverkið eingöngu á sögu hennar, en saga hennar er saga svo margra. Það verður því spennandi að sjá hvernig það mun ganga eftir,“ segir María bjartsýn á framhaldið. Fram undan er nóg um að vera hjá Maríu en ásamt því að skrifa leikverk hefur hún langa reynslu sem handritshöfundur á hinum ýmsu sviðum. „Það er mikið um að vera hjá mér, ég er á fullu að skrifa, bæði er ég að vinna að nýrri sjónvarpsþáttaröð og bíómynd,“ segir María.Aðstandendur sýningarinnar komnir í samlestur í Tjarnarbíói.Vísir/Ernir
Menning Mest lesið Salka Sól látin fara Lífið Var rænd af barnahópi á Filippseyjum Lífið Vinslit, ofbeldi, líkamssmánun og niðurlæging í ANTM Lífið Draumalíf: Fékk Ísland á heilann átta ára Áskorun Mun aldrei flytja aftur heim Lífið Jóhanna Vigdís greindist með MS Lífið „Kalli“ setti Höllu í óþægilega stöðu með óvæntri gjöf Lífið Krakkatía vikunnar: Api, fjall og Barbie Lífið Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Tónlist Trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli vegna meintrar sprengju Lífið Fleiri fréttir „Sorglegt að sjá svona flottan feril“ á þessum stað Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Andrew á Louvre Kinký bangsar og leðurklæddir kroppar „Ósmekkleg“ meðferð á eldri leikurum og álagið keyrt upp Forsetinn, fjölmiðlaskvísur og kempur í Borgarnesinu Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið „Ný sýn, nýr heimur“ Metnaðarfull Mamma Mia í Hafnarfirðinum Seldu upp og undirrituðu samning til 666 ára Alaska og Birnir sigursæl Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Sjá meira