Líkur á eldingum í skúrabólstrum í dag Birgir Olgeirsson skrifar 3. ágúst 2016 08:16 "Ef það verður einhverstaðar þá verður það í þessum skúrabólstrum sem geta orðið háreistir“ Vísir/getty
Búast má við skúrum víða um land í dag og næstu daga þar sem lægðardragið sem hefur hreiðrað um sig yfir miðju landinu virðist ekki vera á förum á næstunni. Þessu lægðardragi fylgir óstöðugt loft og því líkur á skúrum um landið allt en þeim gætu fylgt eldingar. „Ef það verður einhverstaðar þá verður það í þessum skúrabólstrum sem geta orðið háreistir,“ segir Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um líkurnar á eldingum í dag. Óstöðugt loft var einnig yfir landinu í gær og fylgdu því skúrir en hins vegar engar eldingar. Á vef Veðurstofu Íslands er að finna eldingaspá sem sýnir veltimætti (Cape). Veltimætti er mælikvarði á lóðréttan óstöðugleika lofts en eftir því sem loftið er óstöðugra eykst hætta á myndun skúraflóka og við mikinn óstöðugleika er hætta á þrumuveðri.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ fimmtudag:Hæg norðlæg eða breytileg átt og skúrir, einkum um landið norðanvert. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast syðst á landinu.Á föstudag:Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og dálitlir skúrir á víð og dreif, en fer að rigna á Suðausturlandi undir kvöld. Hiti víða 10 til 15 stig.Á laugardag:Norðlæg átt 3-8 m/s og rigning eða skúrir, en þurrt og bjart um landið vestanvert. Hiti 10 til 15 stig.Á sunnudag:Norðaustlæg eða austlæg átt með rigningu sunnan heiða, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast syðst á landinu.Á mánudag og þriðjudag:Útlit fyrir norðanátt með rigningu norðan til á landinu og kólnar lítillega, en þurrt að mestu Sunnan- og Vestanlands og milt að deginum.
Veður Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira