Viðskipti innlent

Kínversk rannsóknastöð rís á sveitabæ í Þingeyjarsýslu

Kristján Már Unnarsson skrifar

Kínversk rannsóknastöð rís nú á sveitabæ skammt frá Laugum í Suður-Þingeyjarsýslu. Heimskautastofnun Kína hyggst rannsaka þar norðurljósin í samstarfi við íslenskar vísindastofnanir. Í frétt Stöðvar 2, sem sjá má hér að ofan, voru sýndar myndir af framkvæmdunum og teikningar af stöðinni, eins og hún mun líta út fullbúin.

Við hringveginn í Reykjadal, tvo kílómetra sunnan Laugaskóla, stendur jörðin Kárhóll og þar sjáum við byggingarkrana, steypudælu og steypubíl. Fyrirtækið SS-byggir á Akureyri er að steypa upp sjöhundruð fermetra rannsóknahús fyrir íslenska sjálfseignarstofnun, Aurora Observatory, sem atvinnuþróunarfélög Eyfirðinga og Þingeyinga stofnuðu ásamt fleirum.

SS-byggir á Akureyri annast uppsteypu hússins.Stö- 2/Friðrik Þór Halldórsson.

Félagið keypti jörðina fyrir 80 milljónir króna og reisir bygginguna fyrir yfir 300 milljónir króna. Kostnaðurinn verður greiddur með leigutekjum frá Heimskautastofnun Kína.

Verkefnið hófst í framhaldi af samstarfssamningi íslenskra og kínverska stjórnvalda árið 2012 um norðurslóðir en þar var meðal annars gert ráð fyrir þeim möguleika að koma á fót norðurljósaathuganastöð á Íslandi.

Kínversk fjárfesting í þingeyskum sveitadal hefur hins vegar vakið tortryggni hjá sumum, sem hafa spurt hvort hér sé eitthvað annað á ferðinni en saklaus norðurljósarannsóknastöð.

Svona mun rannsóknastöðin í Reykjadal líta út fullbyggð. Laugar í baksýn.Grafík/Aurora Observatory.

Reinhard Reynisson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga, segir þessa tortryggni hins vegar algerlega óþarfa. Íslenskar vísindastofnanir verði í samstarfi við þá kínversku, þeirra á meðal Raunvísindastofnun Háskólans, Veðurstofa Íslands og Háskólinn á Akureyri. Stöðin verði jafnframt opin vísindamönnum annarra þjóða. Þá sé ráðgert að hafa gestastofu í húsinu sem verði opin almenningi. 

Reinhard segir stöðina skapa ómæld tækifæri fyrir alþjóðlegt vísindasamstarf, en einnig fyrir norðurljósaferðamennsku á Norðurlandi. Þá stuðli hún beint og óbeint að fjölbreyttara atvinnulífi í héraðinu. Áformað er að starfsemin hefjist fyrir lok þessa árs en húsið verður þó ekki fullbyggt fyrr en á næsta ári.

Norðurljósarannsóknastöð Heimskautastofnunar Kína. Fulltrúar Raunvísindastofnunar Háskólans, Veðurstofu Íslands og Háskólans á Akureyri verða í vísindaráði.Grafík/Aurora Observatory.

Tengdar fréttir

Kínverjar vilja fjárfesta í umskipunarhöfn á Íslandi

Kínverjar hafa rætt við íslensk stjórnvöld um að byggja hafnarmannvirki á Íslandi vegna siglinga yfir Norðurskautið. Þetta upplýsir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra en á ráðstefnu í dag sagði hann mestu viðskiptatækifæri Íslendinga á þessari öld tengjast heimskautasvæðunum. Salurinn á Grand hótel Reykjavík var þéttsetinn á ráðstefnu sem utanríkisráðuneytið, Samtök atvinnulífsins og Íslandsstofa efndu til um sóknarfæri á norðurslóðum.

Aukið vísindasamstarf við Kína

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, fór í formlega heimsókn til Kína í mars á þessu ári en tilgangur ferðarinnar var að undirrita samstarfsyfirlýsingu við Natural Science Foundation of China (NSFC) og þróa áframhaldandi vísindasamstarf.

Búinn að undirrita fríverslunarsamninginn

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, og Gao Hucheng, viðskiptaráðherra Kína, undirrituðu í morgun í Peking fríverslunarsamning milli Íslands og Kína að viðstöddum forsætisráðherrum ríkjanna. Þetta er fyrsti fríverslunarsamningur sem Evrópuríki gerir við Kína og veitir íslenskum fyrirtækjum og útflutningsgreinum forskot á ört vaxandi Kínamarkað.

Snædrekinn kominn til Reykjavíkur

Kínverska rannsóknarskipið og ísbrjóturinn Snædrekinn liggur nú við Ytrihöfn í Kollafirði. Það lagðist að bryggju um níu leytið í morgun.

Kínverjar vilja kaupa jörð í Reykjadal

Kínverjar leita nú leiða til að fá áratuga aðgang að jörð í Reykjadal vegna norðurljósarannsókna. Til skoðunar er að stofnað verði félag um málið með Arctic Portal, Eyþingi og Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×