Pogba til Manchester United fyrir 80 milljónir punda? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júlí 2016 10:30 Paul Pogba. Vísir/Getty
Paul Pogba er að fara að mæta íslenska landsliðinu á EM í Frakklandi á sunnudaginn en hann gæti orðið leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United eftir að Evrópumótinu lýkur. Enska blaðið Daily Star hefur heimildir fyrir því að Paul Pogba sé þegar kominn í viðræður við Manchester United um að gerast leikmaður liðsins. Manchester United er tilbúið að slá félagsmet sitt og borga 80 milljónir punda fyrir franska miðjumanninn. Það eru meira en þrettán milljarðar í íslenskum krónum. Paul Pogba var reyndar einu sinni leikmaður Manchester United en félagið leyfði honum að fara frítt árið 2012. Paul Pogba er enn bara 23 ára gamall en hann hefur spilað stórt hlutverk með Juventus undanfarin fjögur tímabil og unnið ítalska meistaratitilinn öll fjögur árin. Paul Pogba var með 8 mörk og 13 stoðsendingar í 35 leikjum á nýloknu tímabili. Juventus hefur fengið 2,44 stig að meðaltali úr þeim 124 leikjum sem kappinn hefur spilað með liðnu frá 2012 og hann er með 28 mörk og 31 stoðsendingu í þeim. Það er ljóst að menn á Old Trafford ætla að styrkja liðs sitt með stjörnuleikmönnum en í gær tilkynnti sænski súperframherjinn Zlatan Ibrahimovic að væri að leiðinni í Manchester United. Zlatan Ibrahimovic og Paul Pogba hafa einmitt sama umboðsmann, Mino Raiola, og hann er einnig lykilmaður í að koma Henrikh Mkhitaryan frá Borussia Dortmund til Manchester United. Manchester United hefur mest borgað 59,7 milljónir punda fyrir einn leikmann en það var þegar félagið keypti Angel di Maria frá Real Madrid 2014.Paul Pogba.Vísir/Getty
EM 2016 í Frakklandi Enski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Fótbolti Fleiri fréttir Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjá meira