Verð að vera ég sjálfur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. júlí 2016 08:00 Guðmundur Benediktsson er orðinn heimsfrægur eftir lýsingar sínar frá EM.
Símtölin, tölvupóstarnir og skilaboðin skipta örugglega þúsundum. Þetta er bara vitleysa. Ég myndi orða það helst þannig,“ segir Guðmundur í samtali við Fréttablaðið. „Þetta er alger vitleysa sem ég hef lítinn áhuga á að taka þátt í.“ Sigurmark Arnórs Ingva Traustasonar gegn Austurríki á Stade de France í París er einn af hápunktum Evrópumótsins til þessa og Íslendingar hafa fengið að upplifa þá stund endurtekið í gegnum lýsingu Guðmundar á markinu, sem fór eins og eldur um sinu í netheimum fljótlega eftir leik. Athyglin varð svo engu minni eftir að ummæli sem hann lét falla í útsendingu Símans eftir að leikur Íslands og Englands var flautaður af og 2-1 sigur Íslands staðreynd, sem og sæti í 8-liða úrslitum keppninnar, stráðu salti í galopið sár ensku þjóðarinnar eftir umrætt tap gegn „litla“ Íslandi.Frægðin aldrei heillað Guðmundur er 41 árs og hefur starfað í kringum fótbolta allt sitt líf. Hann þótti einn allra efnilegasti knattspyrnumaður sem Ísland hefur alið af sér en þrálát hnémeiðsli urðu til þess að atvinnumannsferill hans komst aldrei á flug. Guðmundur er þó einn allra sigursælasti leikmaður íslensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi og almennt talið einn sá besti sem hefur spilað í henni. Hann varð Íslandsmeistari með bæði KR og Val og spilaði þar að auki tíu landsleiki. Guðmundur skoraði tvö mörk í bláu treyjunni. Hann er tengdasonur Inga Björns Albertssonar, sonar Alberts Guðmundssonar sem var fyrsti atvinnumaður Íslands í knattspyrnu. Sonur hans og alnafni langafa síns er nú atvinnumaður hjá PSV Eindhoven í Hollandi en Guðmundur nýtti stund milli stríða, á milli landsleikja, til að heimsækja son sinn í vikunni. Guðmundur verður svo á sínum stað á Stade de France í Saint-Denis þegar Ísland mætir Frakklandi á sunnudagskvöldið. Hann er löngu orðinn þekktur fyrir lýsingar sínar á Stöð 2 Sport, allra helst úr enska boltanum og Meistaradeild Evrópu. En þrátt fyrir að starfa í heimi fjölmiðlanna hefur hann ekki áhuga á að vera í sviðsljósinu. „Ég hef gaman af því að vinna mína vinnu en ég hef engan sérstakan áhuga á að vera áberandi þar fyrir utan. Það hefur aldrei heillað mig sérstaklega,“ segir hann.Arnór Ingvi í stuði eftir leikinn á Stade de France.Vísir/VilhelmGet ekki skoðað fréttir í símanum Athyglin er þó engu að síður til staðar og Guðmundur viðurkennir að hann hafði gaman af þessu öllu saman fyrsta klukkutímann eftir að hann fór á ról morguninn eftir leikinn gegn Austurríki. „En þetta hefur ekki verið gaman síðan. Ég get ekki skoðað fréttir í símanum mínum. Hann hringir bara. Þetta er í raun ekki það sem ég leitast eftir í mínu starfi,“ segir hann. Lýsing Guðmundar er nú orðin að stiklu hjá ESPN, stærstu íþróttasjónvarpsstöð heims, og TalkSPORT, stærstu íþróttaútvarpsstöð Evrópu. Hún var tvívegis tekin fyrir í spjallþætti Stephens Colbert, sem vill ráða Gumma Ben til CBS, og má gera ráð fyrir að lýsingin hafi heyrst í flestum löndum heimsins. Guðmundur segir að það hafi ekki verið meðvituð ákvörðun að lýsa markinu á þennan hátt. Hann segir að það sé ekki hægt. „Það er bara ýmislegt sem gerist í beinni útsendingu. Ef vel á að gera þá er best að ákveða ekki neitt,“ segir Guðmundur og bætir við að þegar tilefnið sé jafn stórt og nú séu miklar tilfinningar í spilinu. „Þetta er landsliðið okkar. Og út frá mér persónulega eru þetta strákar sem ég hef spilað með í landsleikjum og hafa verið bæði samherjar og andstæðingar með félagsliðum. Ég hef líka þjálfað suma af þeim. Það gerir þetta enn sérstakara fyrir mig.“Klökkur yfir stuðningnum Framganga íslenska landsliðsins á EM hefur hreyft við íslensku þjóðinni. Guðmundur er engin undantekning. „Við erum að upplifa nýja tíma í íslenskri knattspyrnu. Það eru forréttindi að fá að verða vitni að þessu. Að vera í sama landi og á sama stað. Þetta eru hetjurnar okkar. Fyrir leiki er maður klökkur yfir því hversu öfluga stuðningsmenn við eigum. Maður finnur fyrir því svo sterkt að litla Ísland er mætt á staðinn. Því má gera ráð fyrir að það séu meiri tilfinningar tengdar þessu en öðru sem maður tekur sér fyrir hendur í þessu starfi.“ Guðmundur játar því að það sé allt önnur upplifun að lýsa leikjum Íslands á stórmótum en öllu öðru sem hann hefur tekið sér fyrir hendur. „Þetta er ný staða fyrir okkur öll. Við höfum enn ekki tapað leik á EM og því miður fær maður í kollinn fyrir hvern leik þá spurningu hvort það sé núna komið að því,“ segir hann en hann á stundum erfitt með sig á leikdag. „Fyrir leikinn gegn Englandi þá sveiflaðist ég á milli þess að við myndum vinna leikinn og skíttapa honum. Líkaminn varð ónýtur eftir þessar sveiflur og mér varð óglatt um miðjan dag.“Fylgst með manni Eftir allt sem á undan er gengið mun Guðmundur mæta aftur í vinnuna á sunnudag og lýsa leik Íslands og Frakklands. Hver leikur á eftir öðrum hefur verið stærsti leikur í sögu íslensku þjóðarinnar og þessi er engin undantekning. Að spila gegn Frakklandi í 8-liða úrslitum, og það á þjóðarleikvangi Frakka, verður stund sem íslensk knattspyrna hefur aldrei upplifað fyrr. En eftir allt það sem á undan er gengið, eru einhverjar líkur á því að Guðmundur muni draga úr sinni innlifun, sem hefur verið hans aðalsmerki í gegnum tíðina? „Ég varð var við það í leiknum gegn Englandi að það voru margir í kringum mig í stúkunni sem vissu greinilega af þessu og voru að fylgjast með mér,“ segir Guðmundur. „En maður getur ekki breytt því. Þetta er bara ég. Ég verð að vera ég. Það var einhvern tímann sagt að allt annað væri upptekið.“
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið „Þau hlæja að þessum fíflagangi en mér er dauðans alvara“ Lífið Héldu skírnarveislu á Hótel Borg Lífið Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og hrekkjavaka Lífið Kaupmálar 50+: „Mér finnst uppkomin börn oft ansi frek til fjárins“ Áskorun Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Tónlist Ragga Hólm og Elma eignuðust dreng Lífið Uppgötvaði frænkur á Íslandi í ferð til Srí Lanka Lífið „Mundu nafnið mitt því ég verð þekkt leikkona“ Lífið „Hvar annarstaðar átti hjónaherbergið að vera en á sviðinu“ Lífið Tungumál berst fyrir tilvist sinni í skógum Svíþjóðar Lífið Fleiri fréttir „Hvar annarstaðar átti hjónaherbergið að vera en á sviðinu“ Ragga Hólm og Elma eignuðust dreng Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og hrekkjavaka Héldu skírnarveislu á Hótel Borg „Þau hlæja að þessum fíflagangi en mér er dauðans alvara“ Einhleypan: Góðmennska og húmor heillar Uppgötvaði frænkur á Íslandi í ferð til Srí Lanka „Mundu nafnið mitt því ég verð þekkt leikkona“ Krakkatían: Skólarapp, fótbolti og landafræði Þakklátur Grindvíkingum fyrir traustið Tungumál berst fyrir tilvist sinni í skógum Svíþjóðar Greip tækifærið og nýtur Parísar í botn Fréttatía vikunnar: Alþingi, tónlist og íþróttir Uppgefin á stressinu um miðnætti Edda Falak fagnar tveimur mánuðum sem móðir Hvaða stjórnmálaleiðtogi væri besti drykkjufélaginn? Myndaveisla: Skvísur landsins létu stressið líða úr sér Fjölskylda Matthew Perry tjáir sig í fyrsta skipti 400 fermetra glæsihús með lyftu í Garðabæ „Erfitt að vera kominn á stað sem ég hélt að yrði minn hinsti hvíldarstaður“ Big sexy og Jói Fel tókust á í bjórþambi Heilsuráð Önnu Eiríks fyrir haustið „Ég átti mér draum um að vinna á ruslabíl“ „Alla dreymir um að eiga geit“ Hafi liðið sem gísl í Argentínu Símon veit ekki hvort hann á að hlæja eða gráta Valdi Hugh Jackman fram yfir eiginmanninn Sunneva viðstödd fæðingu sonar Jóhönnu Skálað fyrir skarti í Silfursmára Tarsan-leikari látinn Sjá meira