Tónlist

Muscleboy fékk útbrot eftir partý í Seljavallalaug

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Einkaþjálfarinn Egill „Gilzenegger“ Egilsson hefur ekki sagt skilið við tónlistina þrátt fyrir rúmlega árs útgáfuþögn. Síðast gaf hann út jólalagið Musclebells árið 2014 en snýr nú kokhraustur aftur og frumsýnir nýtt myndband sem DJ Muscleboy við lag sem ber nafnið Muscledance.

„Nú langaði mig til þess að breyta um gír. Strákarnir í StopWaitGo eru náttúrulega snillingar og við hentum í kántrí-steralag. Þannig að maður er í myndbandinu ferskur með kúrekahatt,“ segir Egill sem frumflutti nýja lagið í útvarpsþættinum FM95Blö á sömu sekúndu og myndbandið birtist hér á vef Vísis.

Myndbandið slær í ætt við önnur frá kappanum þar sem áhersla er lögð á þá hluti sem honum finnst fallegir.

„Eiður Birgisson sem leikstýrir myndbandinu er mjög hæfileikaríkur maður. Þau þrjú myndbönd sem ég hef gert hingað til hafa öll verið skotin á einhverjum hálftíma í einhverju skítamixi. Núna langaði mig til þess að taka þetta á allt annað stig. Sjá hvað myndi gerast ef ég myndi setja aðeins meiri metnað í þetta.“

Egill bauð í partý í Seljarvallarlaug og hlaut útbrot fyrir.Vísir/Eiður Birgis
Óðlífi í Seljarvallalaug

Náttúra Íslands fær stórt hlutverk í myndbandinu enda er það álit Egils að þar sé auðlind sem of fáir íslenskir tónlistarmenn nýti sér.

„Það er aðallega bara Bieber-inn og aðrir erlendir tónlistarmenn sem koma og nýta náttúruna. Ég hef alltaf verið mikið náttúrubarn og hún fær að njóta sín í myndbandinu.“

Eitt atriði myndbandsins er skotið í hinni víðfrægu Seljavallalaug sem komst nýlega í fréttirnar þar sem talið er að það geti verið hættulegt heilsu fólks að fara ofan í hana vegna sýklagróðurs og skort á vatnsrennsli í og úr lauginni. Egill getur staðfest að svo sé, en hefur einnig lausnina á reiðum höndum.

„Ég las fréttina eftir að ég hélt þetta partý í lauginni. Þetta voru mörg skot þar sem ég fer vel ofan í og ég gleypti svona hálfan líter af vatni alla vega. Þegar ég las fréttina þá langaði mig til þess að æla. Ég fékk einhver útbrot á lærin og stelpurnar líka. Þetta fór reyndar á nokkrum dögum þannig að ég held að þetta sé í lagi í dag. Ég hellti hins vegar heilmikið af kampavíni þarna ofan í þannig að ég held að það sé að vinna á móti því ógeði sem er þarna í lauginni.“

Í myndbandinu bregður fyrir fjöldinn allur af þekktum andlitum. Þar má nefna; Ívar Guðmundsson, Ásgeir Kolbeinsson, Nökkva Fjalar, Auðunn Blöndal, Sverri Bergmann, Arnar Grant og Gúrrý Jónsdóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.