Fyrirliði Íslandsmeistaranna framlengir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. maí 2016 14:00 Gunnhildur Gunnarsdóttir með nýja samninginn. Mynd/Heimasíða Snæfells
Gunnhildur Gunnarsdóttir, fyrirliði Íslands- og bikarmeistara Snæfells í Domino´s deild kvenna í körfubolta hefur gert nýjan samning við Snæfell. Heimasíða Snæfells segir frá þessu. Gunnhildur hefur unnið þrjá stóra titla með Snæfelli síðan að snéri aftur á heimaslóðirnar sumarið 2014. Hún er lykilmaður bæði hjá Snæfelli og íslenska landsliðinu. Gunnhildur var kosin besti varnarmaður Domino´s deildar kvenna annað árið í röð og þá var hún einnig valin í lið ársins annað árið í röð. Gunnhildur var með 11,6 stig, 4,3 fráköst, 3,2 stoðsendingar og 2,3 stolna bolta að meðaltali í 30 leikjum sínum á Íslandsmótinu. Hún skoraði 23 stig og fimm þriggja stiga körfur í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöll þar sem Hólmarar unnu kvennabikarinn í fyrsta sinn. Gunnhildur tók við leiðtogahlutverkinu í Snæfellsliðinu þegar Hildur Sigurðardóttir lagði skóna á hilluna og það er ekki mikið hægt að kvarta yfir frammistöðu hennar á fyrsta ári sínu sem fyrirliði. Gunnhildur Gunnarsdóttir átti mjög gott tímabil þrátt fyrir að hafa glímt við bakmeiðsli í byrjun leiktíðar, axlarmeiðsli um mitt mót og hnémeiðsli í lokin. Hún harkaði að sér eins og fáir aðrir og leiddi lið sitt til beggja stóru titlana en þetta er í fyrsta sinn sem Snæfellskonur vinna tvöfalt.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Verður Aron þjálfari FH? Handbolti Ef ég væri að spila gegn Liverpool myndi ég trúa á sigur Íslenski boltinn Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Enski boltinn Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Íslenski boltinn Öflug sveit á Norðurlandamótið Sport Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi Íslenski boltinn Enn er Rosenborg í veseni Fótbolti Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Enski boltinn Haukar ósigraðir á toppnum Íslenski boltinn Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ „Stjörnufólk er pirrað“ Ól upp dólg í nýkrýndum Íslandsmeisturum Myndaveisla: Sigurhátíð Grindvíkinga í Síkinu Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Þakkaði guði eftir leik sem gæti verið hans síðasti Tárvot sigurstund bræðranna frá Grindavík Baldur tekur við Álftnesingum Áfall fyrir Grindavík: Kane og Óli meiddir og ekki með í kvöld Vilja ekki sjá annað lið fagna titlinum í Síkinu, aftur „Veit ekki hvort það er hægt en vonandi reyna þau“ Tókst takmarkið eftir stórskemmtilega seríu Magnaðar meistaramyndir úr Njarðvík Sjá meira