Rosberg: Formúlu 1 keppnir eru aldrei auðveldar Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 30. apríl 2016 14:00 Þrír hröðustu menn dagsins. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes náði í sinn 24. ráspól í dag. Hann ræsir fremstur í rússneska kappakstrinum á morgun. Hver sagði hvað eftir tímatökuna? „Við vissum að brautin myndi henta okkur vel, við komum með nýjan framvæng og framtrjónu svo við vorum bjartsýn þegar við mættum. Við erum að fá dekkin til að virka afar vel fyrir okkur,“ sagði Rob Smedley yfirmaður frammistöðumála hjá Williams. „Ég var nokkuð öruggur með minn hring, mistökin kostuðu mig ekki og ég hafði það á tilfinningunni fyrir fram. Það gekk vel í dag en auðvitað auðveldar það mér aðeins keppnina á morgun en Formúlu 1 keppnir eru aldrei auðveldar. Það getur allt gerst á morgun,“ sagði Rosberg eftir tímatökuna. „Auðvitað hefði ég viljað vera nær Mercedes. Við græddum auðvitað á því sem kom fyrir Lewis [Hamilton]. Óáreiðanleikinn er ekki farinn að angra mig ennþá. Við erum að reyna allt sem við getum til að ná Mercedes. Vonandi fáum við góða keppni á morgun, það getur allt gerst. það er langt til loka heimsmeistaramótsins,“ sagði Sebastian Vettel sem varð annar en ræsir sjöundi á morgun. „Uppfærslurnar sem við komum með hingað eru að virka vel. Á morgun höfum við frábært tækifæri til að eiga góða keppni,“ sagði Valtteri Bottas sem ræsir annar á Williams bílnum á morgun.Heimamaðurinn Daniil Kvyat fékk mikinn stuðning í tímatökunni.Vísir/Getty„Ástandið með bíl Lewis er mjög einkennilegt. Þetta er sama vandamál og við höfðum í Sjanghæ. Við þurfum að komast að rót vandans. Öll liðin eru að kreista allt út úr öllum sínum hlutum, það þýðir að stundum bilar eitthvað. Lewis hefur haldið höfðinu hátt í gegnum allt en auðvitað má hann vera vonsvikinn, hann mun jafna sig. það er sama kerfið í bíl Nico svo við þurfum að athuga það hjá honum,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes. „Við vorum að glíma við undirstýringu í bílnum og við vorum kannski að fara aðeins of varlega núna. Við erum að ná augljósum framförum sem er afar jákvætt og vonandi eigum við góða keppni. Við eigum eftir að þurfa að spara mikið eldsneyti á morgun,“ sagði Jenson Button sem ræsir 12. á morgun í McLaren bílnum. „Ég er nokkuð sáttur með áttunda sæti. Við þurftum að hefja tímatökuhringinn án þess að hita dekkin fullkomlega upp sem ruglaði aðeins akstrinum. Við erum reiðubúin að berjast á morgun. Það veltur á óvæntum atburðum í keppninni hvort við eigum möguleika á verðlaunasæti,“ sagði heimamaðurinn, Daniil Kvyat sem ræsir áttundi á morgun á Red Bull bílnum. „Ég er mjög kátur með tímatökuna, í gær átti ég ekki góðar æfingar. Þess vegna veit ég ekki alveg við hverju ég á að búast í keppninni á morgun. Við verðum að bíða og sjá,“ sagði Max Verstappen sem ræsir níundi á morgun á Toro Rosso bílnum.
Formúla Tengdar fréttir Wolff er gapandi yfir þroska Hamilton Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes liðsins í Formúlu 1 segir að Lewis Hamilton hafi þroskast gríðarlega mikið síðan hann kom til liðsins. 23. apríl 2016 23:00 Mercedes fljótastir á föstudagsæfingum Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir Formúlu 1 keppni helgarinnar í Rússlandi, liðsfélagi hans hjá Mercedes Lewis Hamilton var fljótastur á seinni æfingu dagsins. 29. apríl 2016 14:17 Nico Rosberg á ráspól og Lewis Hamilton enn óheppinn Nico Rosberg á Mercedes verður á ráspól á morgun í rússneska Formúlu 1 kappakstrinum. Sebastian Vettel varð annar á Ferrari en ræsir sjöundi. Valtteri Bottas á Williams varð þriðji en ræsir annar og Kimi Raikkonen á Ferrari varð fjórði en ræsir þriðji. 30. apríl 2016 12:44 Arrivabene talar niður uppfærslu Ferrari Ferrari mun mæta með uppfærðar vélar til Rússlands um helgina. Liðsstjóri Ferrari, Maurizio Arrivabene segir uppfærsluna ekki stórfenglega. 27. apríl 2016 23:00 Sebastian Vettel fær fimm sæta refsingu Sebastian Vettel fær fimm sæta refsingu á ráslínunni fyrir rússneska Formúlu 1 kappaksturinn sem fram fer um helgina. Vettel þurfti nýjan gírkassa eftir bilun sem varð í Kína. 30. apríl 2016 06:00 Mest lesið Umræðan væri önnur ef um Rashford væri að ræða en ekki Grealish Enski boltinn Beckham kærður í tengslum við mál Diddy Sport Kyssti mótherja eftir að hafa sleikt annan um daginn Sport Rotaðist eftir að hafa dottið í miðju hlaupi Sport Baðst afsökunar á tæklingunni í Garðabænum Íslenski boltinn Keane gagnrýndi Arsenal: „Hvað gerir annað sætið fyrir þig? Þú vilt vinna titla“ Enski boltinn Sjáðu markið hans Alberts gegn Napoli Fótbolti Liverpool tilkynnir um risasamning við Adidas Enski boltinn Stjórnarformaður BBC vill breytingar á Match of the Day Enski boltinn „Þetta félag mun aldrei deyja“ Enski boltinn Fleiri fréttir Cadillac verður með lið í formúlu 1 Lofaði Hamilton að ræða ekki við Verstappen Lewis Hamilton: Ég verð aldrei gamall maður Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúlu 1 ungstirnið viðurkennir að hafa fallið á ökuprófinu Eiginkona Michael Schumacher í áfalli Dómur fallinn: „Þetta var viðbjóðslegt af mér og ég tek fulla ábyrgð“ Sjá meira
Wolff er gapandi yfir þroska Hamilton Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes liðsins í Formúlu 1 segir að Lewis Hamilton hafi þroskast gríðarlega mikið síðan hann kom til liðsins. 23. apríl 2016 23:00
Mercedes fljótastir á föstudagsæfingum Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir Formúlu 1 keppni helgarinnar í Rússlandi, liðsfélagi hans hjá Mercedes Lewis Hamilton var fljótastur á seinni æfingu dagsins. 29. apríl 2016 14:17
Nico Rosberg á ráspól og Lewis Hamilton enn óheppinn Nico Rosberg á Mercedes verður á ráspól á morgun í rússneska Formúlu 1 kappakstrinum. Sebastian Vettel varð annar á Ferrari en ræsir sjöundi. Valtteri Bottas á Williams varð þriðji en ræsir annar og Kimi Raikkonen á Ferrari varð fjórði en ræsir þriðji. 30. apríl 2016 12:44
Arrivabene talar niður uppfærslu Ferrari Ferrari mun mæta með uppfærðar vélar til Rússlands um helgina. Liðsstjóri Ferrari, Maurizio Arrivabene segir uppfærsluna ekki stórfenglega. 27. apríl 2016 23:00
Sebastian Vettel fær fimm sæta refsingu Sebastian Vettel fær fimm sæta refsingu á ráslínunni fyrir rússneska Formúlu 1 kappaksturinn sem fram fer um helgina. Vettel þurfti nýjan gírkassa eftir bilun sem varð í Kína. 30. apríl 2016 06:00