Segir teikningar af brúðarkjól Middleton stolnar Ritstjórn skrifar 26. apríl 2016 13:00 Kate í kjólnum á brúðkaupsdaginn
Hönnuðurinn Christine Kendall hefur kært tískufyrirtækið Alexander McQueen og hönnuð þess, Sarah Burton, fyrir að hafa stolið hönnun hennar á brúðarkjól hertogaynjunnar af Cambridge, Kate Middleton og sagt vera sína. Talsmenn McQueen neita þessum ásökunum og segja vera gjörsamlega fáránlegar ekki geta staðist. Segist Kendall hafa sent Middleton teikningar af brúðarkjólum nokkrum mánuðum fyrir brúðkaupið, og vill meina að teikningarnar hafi borist til Burton. Middleton hinsvegar þvertekur fyrir að hafa nokkurntíma séð teikningar frá Kendall. Burton neitar einnig og segist aldrei hafa séð teikningarnar né hafa heyrt minnst á Kendall, fyrr en þegar hún sendir þessa ákæru, þrettán mánuðum eftir brúðkaupið. Málið er enn í skoðun, þar sem Kendall segist vera fullviss um að teikningum hennar hafi verið stolið og þær notaðar í nafni McQueen.Kjóllinn var stórglæsilegur og vakti mikla athygli
Glamour Tíska Mest lesið Sigrún Eva og kærastinn fyrir Steve Madden Glamour Fatalína úr smiðju frönsku ritstýrunnar Glamour Kristen Stewart rakaði af sér hárið Glamour Emma Watson í hinum fullkomna Dior kjól Glamour Smekkbuxur og lakk hjá Balmain Glamour Gwyneth Paltrow trúlofuð Glamour Bjútíbiblía Glamour er komin út Glamour Rauði dregillinn á tónlistarverðlaunum MTV Glamour Töfrandi augu og fölar varir Glamour Undarlegar níu mínútur með Bieber Glamour