Kári vann sinn fimmta Íslandsmeistaratitil Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. apríl 2016 19:53 Daníel Thomsen og Margrét Jóhannsdóttir fagna sigri í tvenndaleik. mynd/bsí
Margrét Jóhannsdóttir og Kári Gunnarsson urðu í dag Íslandsmeistarar í einliðaleik á Meistaramóti Íslands í badminton.Margrét vann Tinnu Helgadóttur í úrslitum kvennamegin en þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Margrétar í einliðaleik. Í úrslitaleiknum í karlaflokki bar Kári sigurorð af Atla Jóhannessyni. Kári vann báðar loturnar örugglega, 21-12 og 21-13, og tryggði sér sinn fimmta Íslandsmeistaratitil. Kári og Atli kepptu saman í tvíliðaleik þar sem þeir unnu Einar Óskarsson og Daníel Jóhannesson. Þetta er þriðja árið í röð sem Kári og Atli verða Íslandsmeistarar í tvíliðaleik. Í tvíliðaleik kvenna báru Drífa Harðardóttir og Rakel Jóhannsdóttir sigur úr býtum en þær unnu áðurnefnda Margréti og Söru Högnadóttur í úrslitum. Það gekk betur hjá Margréti í tvenndarleiknum þar sem hún keppti með Daníel Thomsen. Líkt og í einliðaleiknum mætti Margrét Tinnu sem keppti með bróður sínum, Magnúsi Inga. Margrét og Daníel unnu fyrri lotuna, 21-19, og þá seinni með sömu tölum og vörðu þar með Íslandsmeistaratitil sinn.Úr úrslitaleiknum í tvíliðaleik kvenna.vísir/antonvísir/anton
Aðrar íþróttir Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Uppgjörið: Ísland - Spánn 1-6 | Heimsmeistararnir léku sér í Laugardalnum Fótbolti Fleiri fréttir Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Geta unnið HM þrátt fyrir að eiga engan leikmann á topp 100 Wembanyama sleppur við refsingu Infantino vill ekki biðjast afsökunar á miðaverðinu á HM „Við erum félagar, við Messi“ Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Messi sló ellimet gegn Íslandi Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Átta rauð spjöld í sama leiknum Steinar áfram hjá Ármanni Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Ætla að kæra stuðningsmenn til lögreglunnar Hamar og Þór hætta samstarfi Benedikt verður lærisveinn Arnórs Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Martin í úrvalsliðinu Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Sjáðu magnaða innkomu Messi og öll mörk heimsmeistaranna Mótmæli fyrir utan opnunarleik heimsmeistaramótsins Endurfundir Messi og Guðjohnsen Sjá meira