Apple kynnti í dag nýjan síma, iPhone SE, en hann er minni en nýjustu útgáfurnar af símanum sem eru á markaðnum nú. Þá er iPhone SE jafnframt ódýrasti iPhone-inn hingað til en í umfjöllun Telegraph kemur fram að hann komi til með að kosta 399 dollara. Ekki liggur þó fyrir hvað hann mun kosta hér á landi en hægt verður að panta fyrirfram á netinu frá og með fimmtudeginum 24. mars.
iPhone SE verður um 10 sentímetra langur og þannig töluvert minni en iPhone 6 Plus til að mynda en hann er um 15 sentímetrar. Síminn er því svipaðri að stærð og til dæmis iPhone 5s sem kom út árið 2013.
Einn af stjórnendum Apple, Greg Jozwiak, sagði á kynningu fyrirtækisins í dag að fyrirtækið hefði selt meira en 30 milljón síma sem eru svipaðir að stærð og nýi iPhone-inn. Þá segir Thomas Husson, sérfræðingur í farsímamarkaðnum, að símar eru jafnstórir og iPhone 6 séu ekki fyrir alla.
„Þeir símar hafa verið sérstaklega vinsælir í Asíu en það er eftirspurn eftir minni tækjum. Það þarf að láta iPhone 5s hverfa smám saman af markaðnum og kynna til sögunnar ódýrari síma sem er samt búinn gæðum iPhone 6,“ segir Husson.
Tim Cook, forstjóri Apple, notaði síðan tækifærið og áréttaði þá afstöðu fyrirtækisins að það hyggst berjast gegn því af öllum mætti að Bandaríska alríkislögreglan, FBI, fái leyfi til að brjótast inn í iPhone-síma Syed Rizwan Farook sem skaut 14 manns til bana í San Bernardino í desember síðastliðnum.
„Við bjuggum símann til fyrir ykkur og fyrir mörg okkar er þetta mjög persónulegt tæki,“ sagði Cook.
Sjá má alla kynningu Apple hér.
Ódýrasti iPhone-inn til þessa

Tengdar fréttir

Enn slær í brýnu milli Apple og bandarískra yfirvalda
Bandaríska dómsmálaráðuneytið segir að afstaða Apple í dulkóðunarmálinu skaði stofnanir sem vinni að því að tryggja réttindi borgara.

Nýr iPhone verður væntanlega minni en iPhone 6
Apple kynnir nýungar 21. mars næstkomandi.

John Oliver tæklar deilu FBI við Apple um dulkóðun
Segir að Rússland og Kína muni líklega ekki sætta sig við að hafa ekki sömu tæki og Bandaríkin.

Kynnir Apple smærri iPhone?
Farið yfir leka og orðróma vegna stórrar kynningar Apple á mánudaginn.

Kynning Apple á nýjum iPhone í beinni
Talið er að tæknirisinn muni kynna nýjan minni iPhone og nýjan iPad á kynningu klukkan fimm í dag.