Hæstiréttur hefur snúið við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði hafnað því að Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari, fengi að leiða fimm vitni fyrir dóm í Aurum-málinu.
Um er að ræða vitnin Bjarna Frímann Karlsson, Gylfa Magnússon, Bjarka Andrew Brynjarsson, Erlend Davíðsson og Smára Rúnar Þorvaldsson en þeir unnu matsgerðir á verðmæti Aurum í einkamáli sem slitastjórn Glitnis höfðaði.
Í dómi Hæstaréttar er það rakið að Bjarni og Gylfi hafi vegna einkamálsins unnið matsgerð í mars 2011 þar sem þeir mátu markaðsvirði 25,7 prósent eignahlutar Fons í Aurum. Matsgerðin barst sérstökum saksóknara frá slitastjórn Glitnis þann 26. apríl 2012 en hún var á meðal þeirra gagna sem lágu til grundvallar ákæru í Aurum-málinu.
Eftir að matsgerðin lá hins vegar fyrir var í einkamálinu óskað eftir yfirmati á því og voru Bjarki, Erlendur og Smári dómkvaddir til þess starfs.
Að mati Hæstaréttar verður að skilja það sem svo að með undirmatsgerðinni hafi sérstökum saksóknara verið veitt sérfræðileg aðstoð við rannsókn málsins sem og ákvörðun um saksókn.
Með yfirmatsgerðinni voru síðan endurmetin þau atriði sem undirmatsgerðin tók til og samkvæmt því kann framburður matsmannanna að skipta máli varðandi gildi matsgerðanna sem sönnunargagna. Fær héraðssaksóknari því að kalla mennina fimm fyrir dóm sem vitni.
Þá fékkst jafnframt úr því skorið í dag að sérfróður meðdómandi í málinu, Hrefna Sigríður Briem, muni ekki víkja sæti en krafa varðandi það var lögð fram í héraði af hálfu Lárusar Welding. Héraðsdómur hafnaði kröfunni en sá úrskurður var kærður til Hæstaréttar. Hæstiréttur vísaði málinu hins vegar frá og mun Hrefna Sigríður því sitja áfram í dómnum.
Í Aurum-málinu eru þeir Jón Ásgeir Jóhannesson, Lárus Welding, Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson ákærðir fyrir umboðssvik og hlutdeild í þeim. Ákæran snýst um sex milljarða króna lán sem Glitnir veitti félaginu FS38 ehf. sem var í eigu Pálma Haraldssonar, vegna kaupa á félaginu Aurum Holdings Ltd, í júlí 2008.
Gylfi Magnússon ber vitni í Aurum-málinu
Tengdar fréttir
Deilt um dómara og vitni í Aurum-málinu
Fyrirtaka verður í Aurum-málinu á morgun en aðalmeðferð þess á að fara fram í apríl. Áður en til þess kemur þarf að leysa úr nokkrum ágreiningsefnum fyrir dómi en eitt þeirra snýr að setu Símons Sigvaldasonar í dómnum.
Aurum-málið: „Beinlínis ósennilegt að tengslin hafi farið fram hjá sérstökum saksóknara“
Verjendur í Aurum-málinu fóru fram á það í Hæstarétti í dag að ómerkingarkröfu ákæruvaldsins yrði hafnað.
Aðalmeðferð í Aurum-málinu í apríl
Áætlað er að aðalmeðferð í Aurum-málinu svokallaða fari fram í apríl á næsta ári. Þetta kom fram við fyrirtöku í málinu í morgun.
Aurum-málið á leið aftur í héraðsdóm
Jón Ásgeir Jóhannesson, Lárus Welding, Magnús Arnar Arngrímsson og Bjarni Jóhannesson eru á leiðinni aftur í héraðsdóm.
Aurum-málið: „Ólafur Þór Hauksson er ekki eins og hver annar saksóknari“
Munnlegur málflutningur um ómerkingarkröfu ákæruvaldsins í Aurum-málinu svokallaða fór fram í Hæstarétti í dag.