Var þetta ásetningur hjá Ragnari? | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 18. mars 2016 22:50
Þór Þorlákshöfn gerði góða ferð í Hafnarfjörðinn í kvöld og vann þriggja stiga sigur, 64-67, á Haukum í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla í körfubolta. Kári Jónsson, sem var á dögunum valinn besti leikmaður seinni hluta Domino's deildarinnar, spilaði aðeins í tæpar 15 mínútur í leiknum en hann meiddist í fyrri hálfleik. Í 2. leikhluta fékk Kári hnykk á bakið eftir svokallaða bakhindrun frá Ragnari Nathanealssyni, miðherja Þórs. Kári var studdur af velli og kom lítið við sögu í leiknum eftir þetta og ekkert í seinni hálfleik. Það var skarð fyrir skildi hjá Haukum eins og Ívar Ásgrímsson, þjálfari liðsins, viðurkenndi í samtali við Vísi eftir leik. „Þetta er bara eins og fyrir hin liðin að missa útlendingana sína. Auðvitað var það mjög slæmt fyrir okkur og svo missum við Emil [Barja] af velli með fimm villur. Það var dýrt í lokin og það kostaði okkur kannski sigurinn að hann fær þessa fimmtu villu,“ sagði Ívar sem kvaðst ekki hafa séð atvikið með Kára og Ragnar. „Ég hef ekki séð atvikið, þannig ég get ekki sagt neitt sjálfur um það, en mér er sagt að þeir sem hafi skoðað þetta í endursýningu hafi sagt að þetta hafi verið grófur ásetningur. Það er kannski erfitt fyrir mig að segja eitthvað hér án þess að hafa horft á þetta.“Atvikið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Dominos-deild karla Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport Uppgjörið: FH - Stjarnan | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Fleiri fréttir Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Sjá meira