Egill Skallagrímsson listaskáld en einnig illræmdur morðingi Kristján Már Unnarsson skrifar 6. mars 2016 18:30 Egill drepur Atleyjar-Bárð, kæran vin Noregskonungs: Hann lagði sverðinu á Bárði miðjum, svo að blóðrefillinn hljóp út um bakið; féll hann dauður niður. Teikning/Jakob Jóhannsson.
Saga Skallagríms Kveldúlfssonar, landnámsmanns Borgarfjarðar, og sonar hans, Egils Skallagrímssonar, eins og hún birtist í Egilssögu, er einhver magnaðasta frásögn Íslendingasagna. Þeir feðgar eru viðfangsefni Landnemanna á Stöð 2 í kvöld, mánudagskvöld 7. mars, klukkan 20.15. „Egill er samkvæmt sögunni alger fjöldamorðingi,“ segir Kjartan Ragnarsson í þættinum en bendir jafnframt á að Egill hafi um leið verið eitt mesta skáld síns tíma og tilfinningavera. Kjartan og kona hans, Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, segja frá Landnámssetri Íslands í Borgarnesi, sem þau stofnuðu fyrir áratug, en þar er bæði landnáminu og Egilssögu gerð skil. Egill fremur eitt mesta illvirkið þegar hann rænir bændafjölskyldur í Kúrlandi, lokar þær svo inni, kveikir í skálanum og drepur svo alla í dyragættinni sem reyna að sleppa út úr eldinum.Teikning/Jakob Jóhannsson. „Við trúum því að þetta hafi allt saman gerst,“ segir Sigríður Margrét, en viðurkennir þó að kannski hafi eitthvað verið fært í stílinn í Egilssögu. Egill var siðblindur fjöldamorðingi og geðklofi sem fann leiðina til hjarta síns, segir Benedikt Erlingsson leikari, sem sýnt hefur einleikinn Mr. Skallagrimsson 400 sinnum í Landnámssetrinu. Egill og félagar sleppa úr haldi Kúra: Leysti hann hendur sínar með tönnum, en er hendur hans voru lausar, leysti hann bönd af fótum sér; síðan leysti hann félaga sína.Teikning/Jakob Jóhannsson. Í þættinum eru raktar ástæður þess að feðgarnir Kveldúlfur og Skallagrímur flúðu Noreg. Sögusvið Egilssögu er skoðað, velt upp sannleiksgildi hennar og hvort mögnuð lýsing á bardögum og ránsferðum Egils sé raunsönn. Rætt er við Torfa Tulinius, prófessor í íslenskum miðaldafræðum við Háskóla Íslands, um gildi Egilssögu sem bókmenntaverks. Hann segir Egilssögu úthugsað listaverk en dregur jafnframt í efa gildi hennar sem sagnfræði. Torfi ritaði bókina Skáldið í skriftinni, um Snorra Sturluson og Egilssögu, en margir fræðimenn hallast að því að Snorri sé höfundur Egilssögu. Hér fyrir neðan má sjá brot úr þættinum.
Menning Íslensk fræði Tengdar fréttir Keltnesk áhrif vanmetin í menningu Íslendinga Keltnesk áhrif í íslenskri menningu eru mun meiri en menn hafa séð eða viljað vera láta, eins og í örnefnum og tungumálinu. 22. febrúar 2016 22:00 Skýrar vísbendingar um veiðistöð fyrir landnám Fornleifarannsókn í Höfnum á Reykjanesi hefur leitt í ljós mannvirki sem reist voru um það bil hálfri öld áður en Ingólfur Arnarson á að hafa numið land. 15. febrúar 2016 21:15 Þarf Ísland nýtt landnámsártal? Er árið 874 enn í gildi eða voru einhverjir búnir að setjast að löngu á undan Ingólfi Arnarsyni? 14. febrúar 2016 09:00 Hann kallar skyr súrmjólk af geit Hvar í Noregi er norskan líkust íslensku? 28. febrúar 2016 09:45 Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira
Keltnesk áhrif vanmetin í menningu Íslendinga Keltnesk áhrif í íslenskri menningu eru mun meiri en menn hafa séð eða viljað vera láta, eins og í örnefnum og tungumálinu. 22. febrúar 2016 22:00
Skýrar vísbendingar um veiðistöð fyrir landnám Fornleifarannsókn í Höfnum á Reykjanesi hefur leitt í ljós mannvirki sem reist voru um það bil hálfri öld áður en Ingólfur Arnarson á að hafa numið land. 15. febrúar 2016 21:15
Þarf Ísland nýtt landnámsártal? Er árið 874 enn í gildi eða voru einhverjir búnir að setjast að löngu á undan Ingólfi Arnarsyni? 14. febrúar 2016 09:00