Töpuðu á síðasta fjórðungi 2015 Samúel Karl Ólason skrifar 22. febrúar 2016 10:16
HSBC, stærsti banki Evrópu, tapaði 858 miljónum dala, um 110 milljörðum króna, á síðasta fjórðungi 2015. Tekjur bankans hafa dregist saman og þá sérstaklega tekjur frá lánum. Bankinn stóðst ekki væntingar markaða og hefur verið kallað eftir frekari sparnaðaraðgerðum. Forsvarsmenn bankans tilkynntu í júní í fyrra að til stæði að segja upp 25 þúsund af starfsmönnum fyrirtækisins, eða um tíu prósent. Stuart Gulliver, yfirmaður bankans, segir að þeim aðgerðum verði haldið áfram. Sérfræðingar sem Bloomberg ræddi við segja helstu ástæðu taps HSBC vera hægagang markaða í Asíu og lækkun á olíu og gasi. Yfir allt árið í fyrra var hagnaður bankans fyrir skata tæpir 19 milljarðar dala, sem var hækkun um eitt prósent. 83,5 prósent þess hagnaðar kom frá Asíu. Þá er fjármálaeftirlit Bandaríkjanna að rannsaka HSBC, vegna ráðninga þeirra í Asíu. Það er vegna ráðninga fólks sem er skylt embættismönnum eða fyrrverandi starfsmenn opinberra fyrirtækja í Asíu.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira