Zidane vill senda James Rodriguez til sálfræðings Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. febrúar 2016 17:00 James Rodriguez. Vísir/Getty
Zinedine Zidane, þjálfari stórliðs Real Madrid, hefur áhyggjur af andlegu ástandi eins stærstu stjörnu liðsins samkvæmt frétt í spænska blaðinu Sport. Kólumbíumaðurinn James Rodriguez hefur ekki fundið sig á þessu tímabili og Zidane er sannfærður um að vandamálið sé andlegt. Zidane er svo óánægður með hugarfar og lítið framlag hjá James Rodriguez að hann vill núna senda leikmanninn til sálfræðings samkvæmt heimildum blaðamanns Sport. Frammistaða James Rodriguez undir stjórn bæði Rafael Benitez og Zinedine Zidane er langt frá því að vera í sama flokki og þegar hann sló í gegn á HM í Brasilíu sumarið 2014. Zinedine Zidane hefur lítið notað James Rodriguez frá því að hann tók við liði Real Madrid í janúar og flott frammistaða Jese er ekki að auðvelda James að vinna sér aftur sæti í byrjunarliðinu. James Rodriguez hefur ekki aðeins átt í vandmálum inn á vellinum því hann var tekinn fyrir ofsaakstur á dögunum þar sem hann reyndi að stinga lögregluna af. James Rodriguez hefur líka verið duglegur að stunda næturlífið í Madrid og hann hefur einnig bætt við sig nokkrum kílóum sem er ekki að hjálpa honum mikið inn á vellinum. Þetta hefur allt samt leitt til þess að Zidane er nú sannfærður um það að James þurfi á sálfræðihjálp að ræða.Zinedine Zidane og James Rodriguez.Vísir/Getty
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Sjá meira