Klopp neitaði að svara spurningum blaðamanna á ensku Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. febrúar 2016 11:30 Jürgen Klopp skellir upp úr á blaðamannafundinum. Vísir/Getty
Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, hafði ekki áhuga á því að tala á öðru tungumáli en þýsku þegar hann svaraði spurningum blaðmanna í Augsburg fyrir leik liðanna í Evrópudeild UEFA í kvöld. Klopp hefur verið afar líflegur í samskiptum sínum við fjölmiðla síðan hann tók við Liverpool í október á síðasta ári. Á hefðbundnum blaðamannafundi daginn fyrir leik byrjaði Klopp að ávarpa blaðamenn á þýsku. Þegar þýskur blaðamaður bar upp spurningu fyrir hönd enskumælandi starfsfélaga sína og bað um að hann myndi svara á ensku, vildi Klopp ekki verða við þeirri bón. „Ég bið kærlega að heilsa starfsfélögum þínum en þeir geta spurt mig sjálfir að þessu þegar ég kem aftur til Englands.“ „Nú erum við staddir í Þýskalandi og ég ætla ekki að svara spurningum á ensku.“ „Ég hitti þá [ensku blaðamennina] nokkuð oft og það ætti ekki að vera erfitt fyrir þá að spyrja mig að þessu á föstudaginn.“ Það var þó túlkur á fundinum og hann spurði hvort hann ætti að þýða svarið fyrir ensku blaðamennina. „Mér er algjörlega sama,“ sagði Klopp og skellihló. Blaðamannafundinn má sjá í heild sinni hér fyrir neðan. Klopp svarar áðurnefndri spurningu eftir 11:30 mínútur.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég reyni bara að njóta fótboltans og lífsins“ Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Sjá meira