Tónlist

Eurovisionlag verður að stuttmynd

Stefán Árni Pálsson skrifar
Helgi Valur sem sendir frá sér myndband við Óvær í dag.
Helgi Valur sem sendir frá sér myndband við Óvær í dag. vísir
„Í dag er svo mikilvægt að hafa einhverja myndskreytingu fyrir lögin á netinu svo að fólk geti bæði séð og heyrt,“ segir Helgi Valur sem sendir frá sér myndband við Óvær í dag en hann flytur það lag í Söngvakeppni Sjónvarpsins.

„Með tilkomu MTV urðu myndbönd að iðnaði sem varð gríðarstór og aðeins stórfyrirtæki gátu staðið að framleiðslu þeirra en í dag geta nánast allir sem hafa áhuga gert myndbönd.“

Lagið Óvær er eftir Karl Olgeirsson en hann er eurovision aðdáendum að góðu kunnur. Hann hefur tekið þátt í keppninni þrisvar áður og í ár keppir hann með tvö lög, Óvær og Kreisí.

„Þegar Kalli gerði myndband við Kreisí fann ég að við yrðum að gera eitt slíkt við Óvær líka og hafði samband við Bjarna Svan sem er mikill kvikmyndagerðarsnillingur. Við ræddum saman um 70’s Bowie myndbönd og Ingmar Bergman og fundum að við vorum á sömu bylgjulengd. Úr varð þetta fína myndband sem nýtir einmitt áhrif frá þessum meisturum og þótt það segi hvorki sögu né lýsi framvindu þá nær það að skila tilfinningu lagsins vel. Bergman var til dæmis þekktur fyrir einstaka notkun á nærmyndum. Jú, það má segja að þetta sé eiginlega stuttmynd,“ segir Helgi Valur að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.