Segist ekki hafa vitað að Borgun fengi greiðslur vegna Visa Europe ingvar haraldsson skrifar 25. janúar 2016 10:39 Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. Vísir/Daníel
Landsbankinn segist ekki hafa upplýsingar um að Borgun gæti átt von á greiðslum vegna valréttar Visa Inc. á Visa Europe þegar bankinn seldi 31,2 prósenta hlut í Borgun á 2,2 milljarða í lok nóvember 2014. Þetta kemur fram á upplýsingavef sem Landsbankinn hefur komið upp vegna sölu bankans á Borgun. Upphæðirnar sem um ræðir eru taldar hlaupa á milljörðum.Landsbankinn seldi 31 prósents hlut í Borgun í nóvember 2014.Vísir/ErnirBankinn segist því ekki hafa sett sem skilyrði við söluna á hlut í Borgun að ef kaupum á Visa Europe yrði myndu greiðslur sem Borgun fengi renna til Landsbankans í samræmi við hlut bankans. Þegar bankinn seldi 38 prósenta hlut sinn í Valitor til Arion banka þremur vikum síðar var hins vegar ákvæði að ef kaupum á Visa Europe yrði myndi Landsbankinn fá þær greiðslur.Landsbankinn hefur hins vegar viðurkennt að hafa vitað að af kaupunum á Visa Europe gæti orðið.Enda var greint frá málinu í fjölmiðlum víða um heim áður en tilkynnt var um sölu bankans á Borgun. Þá taldi Visa Inc. að Visa Europe myndu kosta yfir 10 milljarða dollara, um 1.300 milljarða króna. Í lok árs síðasta árs var svo greint frá því að af kaupunum yrði og kaupverðið væri 21 milljarður evra, um 3.000 milljarða íslenskra króna. Upphæðin skiptist milli útgefenda Visa korta í Evrópu eftir umsvifum þeirra. Landsbankinn seldi hlutinn í Borgun til hóps fjárfesta og stjórnenda Borgunar. Í apríl á síðasta ári, greiddi fyrirtækið 800 milljónir í arð til eigenda sinna, sem var fyrsta arðgreiðslan frá 2007Landsbankinn segir ekki hafa fengið upplýsingar um hugsanleg réttindi í viðræðunum frá Borgun og þá hafi heldur Borgun ekki getið til um þær í ársreikningum sínum. „Stjórnendahópurinn sem var í viðræðum við Landsbankann hafði fengið leyfi stjórnar til að gefa upplýsingar um rekstur félagsins. Í viðræðunum við stjórnendur komu ekki fram neinar upplýsingar um að Borgun hefði rétt til hlutdeildar í verðmætum valréttarins, hvað þá að vegna hans hefðu skapast verðmæti hjá Borgun. Landsbankinn hefur enga ástæðu til að ætla að stjórnendur Borgunar hafi verið meðvitaðir um tilvist slíkra réttinda,“ segir á upplýsingavef bankans. Þá segir Landsbankinn að þær greiðslur sem Borgun eigi von á hafi að mestu komið til vegna aukinna Visa viðskipta Borgunar erlendis á árinu 2015, eftir að bankinn seldi hlut sinn í Borgun. Landsbankinn hafi vitað af þessum áformum um vöxt erlendis og talið þau afar áhættusöm. „Að mati bankans fylgdi þeirri starfsemi veruleg áhætta og líkur voru taldar á að hún gæti leitt til tjóns hjá félaginu. Bankinn byggði þetta mat sitt m.a. á fyrri útrásarsögu íslenskra kortafyrirtækja.“ Landsbankinn mun að eigin frumkvæði afhenda Alþingi samantekt um málið.
Borgunarmálið Tengdar fréttir Landsbankinn vissi að Visa gæti tekið yfir Visa Europe Landsbankinn hafði upplýsingar um valrétti en hafði engar upplýsingar um að Borgun hf. gæti notið hagsbóta af yfirtöku á VISA Europe. Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans segir það hafa legið fyrir síðar, eftir söluna á bréfunum í Borgun hf. 24. janúar 2016 10:10 Skipuðu Landsbankanum ekki að selja Borgun Samkeppniseftirlitið fellst ekki á að ráðstafanir þeirra hafi haft áhrif á skilmála eða viðskiptakjör sölunnar. 21. janúar 2016 18:34 Hafði ekki nein áhrif á rekstur eða stefnu Borgunar og Valitors Landsbankinn taldi að í ljósi stöðu sinnar væri hagsmunum hans best borgið með því að selja hluti sína í fyrirtækjunum. 22. janúar 2016 18:12 Skilyrði eftirlitsins höfðu ekki áhrif á sölu Borgunar "Við fáum ekki séð að nein skilyrði sem hvíldu á Landsbankanum af hálfu Samkeppniseftirlitsins hafi haft áhrif á verð eða skilmála þessarar sölu,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, um sölu Landsbankans á kortafyrirtækinu Borgun. 23. janúar 2016 07:00 Boðað til mótmæla fyrir utan Landsbankann Í mótmælaboðinu er spurt hvort það sé trúverðugt að bankinn hafi selt eignarhlutinn í Borgun án þess að hafa hugmyndir um áætlanir fyrirtækisins um útrás. 23. janúar 2016 17:36 Bankaráðið ekki fundað um Borgun Bankastjóri Landsbankans ber ábyrgð á sölunni á sínum tíma en bankaráðið ber fullt traust til hans. 25. janúar 2016 06:00 Landsbankinn tryggði sig fyrir Visa samningi við sölu á Valitor en ekki Borgun Landsbankinn seldi Arion banka hlut í Valitor með ákvæði um að bankinn fengi greitt ef Visa Inc. seldi Visa Europe. Sambærilegt ákvæði var ekki gert við söluna á Borgun. 21. janúar 2016 06:00 Mest lesið Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Viðskipti innlent Nova kaupir Ofar Viðskipti innlent Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Neytendur Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Atvinnulíf Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Viðskipti innlent Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Atvinnulíf Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Erla Ósk nýr formaður Jafnvægisvogarráðs Eldjárn kaupir Tölvutek ásamt lykilstarfsmönnum Ráðin framkvæmdastjóri mannauðssviðs hjá Húsasmiðjunni Russ DeLeon eignast Höfða Lodge Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Sjá meira
Landsbankinn vissi að Visa gæti tekið yfir Visa Europe Landsbankinn hafði upplýsingar um valrétti en hafði engar upplýsingar um að Borgun hf. gæti notið hagsbóta af yfirtöku á VISA Europe. Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans segir það hafa legið fyrir síðar, eftir söluna á bréfunum í Borgun hf. 24. janúar 2016 10:10
Skipuðu Landsbankanum ekki að selja Borgun Samkeppniseftirlitið fellst ekki á að ráðstafanir þeirra hafi haft áhrif á skilmála eða viðskiptakjör sölunnar. 21. janúar 2016 18:34
Hafði ekki nein áhrif á rekstur eða stefnu Borgunar og Valitors Landsbankinn taldi að í ljósi stöðu sinnar væri hagsmunum hans best borgið með því að selja hluti sína í fyrirtækjunum. 22. janúar 2016 18:12
Skilyrði eftirlitsins höfðu ekki áhrif á sölu Borgunar "Við fáum ekki séð að nein skilyrði sem hvíldu á Landsbankanum af hálfu Samkeppniseftirlitsins hafi haft áhrif á verð eða skilmála þessarar sölu,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, um sölu Landsbankans á kortafyrirtækinu Borgun. 23. janúar 2016 07:00
Boðað til mótmæla fyrir utan Landsbankann Í mótmælaboðinu er spurt hvort það sé trúverðugt að bankinn hafi selt eignarhlutinn í Borgun án þess að hafa hugmyndir um áætlanir fyrirtækisins um útrás. 23. janúar 2016 17:36
Bankaráðið ekki fundað um Borgun Bankastjóri Landsbankans ber ábyrgð á sölunni á sínum tíma en bankaráðið ber fullt traust til hans. 25. janúar 2016 06:00
Landsbankinn tryggði sig fyrir Visa samningi við sölu á Valitor en ekki Borgun Landsbankinn seldi Arion banka hlut í Valitor með ákvæði um að bankinn fengi greitt ef Visa Inc. seldi Visa Europe. Sambærilegt ákvæði var ekki gert við söluna á Borgun. 21. janúar 2016 06:00
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent