Textann við lagið samdi Júlí Heiðar í samvinnu við Guðmund Snorra Sigurðarson sem er annar flytjenda lagsins auk Þórdísar Birnu Borgarsdóttur. „Hún er kærastan mín og hann er einn af mínum bestu vinum þannig að ég þurfti ekki að leita langt,“ segir Júlí Heiðar glaður í bragði en hann mun ekki koma að flutningi lagsins sjálfur þrátt fyrir að hafa reynt fyrir sér á söngsviðinu áður.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég kemst inn í keppnina og mig langaði til þess að fá einhvern teknískari en mig sjálfan og betri en ég að syngja til að gera þetta,“ segir hann um ástæður þess að hann muni ekki þenja raddböndin á sviðinu. „Mig langaði líka til þess að hafa yfirsýn yfir hlutina og vinna í laginu í staðinn fyrir að vera að svitna yfir því að flytja þetta.“ Lagið segir hann fjalla um manneskju sem langi til þess að skilja eitthvað eftir sig en vill ekki gefa meira upp um umfjöllunarefni textans að svo stöddu.
Eurovision er þó ekki það eina sem á hug Júlís Heiðars þessa dagana þar sem hann leggur einnig stund á nám í leiklist í Listaháskóla Íslands og því deginum ljósara að það verður nóg um að vera hjá honum á næstu mánuðum. „Það verður nóg að gera núna í janúar og febrúar, langir skóladagar og svo æfingar á kvöldin,“ segir hann og bætir við að hann setji það þó ekki fyrir sig að vera upptekinn: „Þá skipuleggur maður sig meira og tæklar dagana betur.“

Júlí Heiðar segist vera talsverður aðdáandi Eurovision-keppninnar og segir hann rússneska lagið A Million Voices frá því í fyrra í flutningi Polina Gagarina í uppáhaldi auk belgíska lagsins Rhytm Inside í flutningi Loïc Nottet. A Million Voices hafnaði í öðru sæti í aðalkeppninni og Rhythm Inside í fjórða sæti aðalkeppninnar.
Hann er þó að eigin sögn ekki upptekinn af því að vinna keppnina, hvorki hér heima né þá stóru sem fram fer þann 14. maí næstkomandi í Svíþjóð. „Ég er nú svona semi-búinn að vinna því ég komst inn, það er bara nóg fyrir mig,“ segir hann himinlifandi að lokum.