Alexander rétt á undan Arnóri Atla í einkunnagjöf Hbstatz Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. janúar 2016 22:45 Alexander Petersson. Vísir/Valli
Alexander Petersson var besti leikmaður íslenska handboltalandsliðsins í tapleiknum á móti Hvíta Rússlandi í öðrum leik liðsins á Evrópumótinu í Póllandi. Hbstatz.is tekur saman tölfræði íslenska liðsins á Evrópumótinu og Vísir hefur fengið leyfi til að sækja upplýsingar í tölfræðikerfið en það kemur með nýja vídd í handboltatölfræði á Íslandi. Tölfræðikerfið hjá Hbstatz.is tekur meðal annars saman einkunn leikmanna út frá tölfræði þeirra í viðkomandi leik og þá er bæði tekin saman frammistaðan í vörn og sókn. Alexander Petersson var hæstur í leiknum á móti Hvíta Rússlandi með 7,7 í tölfræðieinkunn en hann var aðeins hærri en Arnór Atlason sem fékk 7,6 í einkunn. Arnór Þór Gunnarsson og Aron Pálmarsson voru síðan jafnir í þriðja sætinu með 6,9, rétt á undan fyrirliðanum Guðjóni Val Sigurðssyni sem fékk einkunnina 6,8.Sjá einnig:Aron Pálmarsson fékk langhæstu einkunnina hjá Hbstatz Arnór Atlason fékk langhæstu einkunnina fyrir sóknarleikinn eða 9,1 en hann klikkaði ekki á skoti, tapaði ekki bolta og átti fullt af stoðsendingum. Alexander Petersson og Aron Pálmarsson voru jafnir í öðru sæti með 7,9 í einkunn fyrir sóknarleikinn. Ásgeir Örn Hallgrímsson (7,0) fékk hæstu einkunnina fyrir varnarleikinn en annar var hornamaðurinn Arnór Þór Gunnarsson með 6,9. Þriðji voru síðan þeir Vignir Svavarsson og Bjarki Már Gunnarsson með 6,3 í einkunn fyrir varnarleikinn. Barys Pukhouski var hæstur í liði Hvít Rússa með einkunn upp á 9,8 en íslenska liðið réði ekkert við hann í þessum leik. Siarhei Rutenka var síðan annar með einkunn upp á 7,6.Einkunnagjöf íslensku leikmannanna í 38-39 tapi á móti Hvíta Rússlandi: Alexander Petersson 7.7 Arnór Atlason 7.6 Arnór Þór Gunnarsson 6.9 Aron Pálmarsson 6.9 Guðjón Valur Sigurðsson 6.8 Róbert Gunnarsson 6.5 Vignir Svavarsson 6.5 Snorri Steinn Guðjónsson 6.2 Ásgeir Örn Hallgrímsson 6.2 Björgvin Páll Gústavsson 5.6 Bjarki Már Gunnarsson 5.3 Guðmundur Hólmar Helgason 5.2 Stefán Rafn Sigurmannsson 5.0 Ólafur Guðmundsson 5.0 Rúnar Kárason 4.7 Aron Rafn Eðvarðsson 4.6Besta framistaðan í sókn Arnór Atlason 9.1 Alexander Petersson 7.9 Aron Pálmarsson 7.9 Arnór Þór Gunnarsson 7.3 Guðjón Valur Sigurðsson 7.3 Róbert Gunnarsson 7.3 Besta frammistaðan í vörn Ásgeir Örn Hallgrímsson 7.0 Arnór Þór Gunnarsson 6.9 Vignir Svavarsson 6.3 Bjarki Már Gunnarsson 6.3 Alexander Petersson 6.2
EM 2016 karla í handbolta Tengdar fréttir Handvarpið: Með bakið upp við hinn fræga vegg Strákarnir okkar eru í vondum málum eftir skelfilegt tap gegn Hvíta-Rússlandi í dag, en farið er yfir leikinn og mögulega Íslands í nýjasta þætti Handvarpsins. 17. janúar 2016 20:16 Mögnuð stund: Strákarnir okkar og íslensku stuðningsmennirnir tóku „Ég er kominn heim“ Stuðningsmenn íslenska handboltalandsliðsins eru farnir að vekja athygli í Póllandi en í gærkvöldi tók hópurinn lagið Ég er kominn heim með Óðni Valdimarssyni til heiðurs strákunum okkar. 16. janúar 2016 11:40 Alexander stoppaði Norðmenn níu sinnum Alexander Petersson átti flottan leik í vörn íslenska liðsins í sigrinum á Noregi í fyrsta leik liðsins á EM í Póllandi. 16. janúar 2016 08:00 Aron Pálmarsson fékk langhæstu einkunnina hjá Hbstatz Aron Pálmarsson var besti leikmaður íslenska handboltalandsliðsins í sigrinum á Noregi í fyrsta leik liðsins á Evrópumótinu í Póllandi. 15. janúar 2016 23:30 Handvarpið: "Það þarf að tryggja úlnliðinn á Aroni Pálmarssyni“ Sigri á Norðmönnum var fagnað í þriðja þætti Handvarpsins, hlaðvarpi Vísis um stórmótin í handbolta. 16. janúar 2016 16:02 Mest lesið Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Coote dómari í enn verri málum Enski boltinn Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Enski boltinn Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Fótbolti Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Körfubolti Popovich fékk heilablóðfall Körfubolti Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Fótbolti Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Handbolti Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Enski boltinn Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? Handbolti Fleiri fréttir „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? „Það er erfitt að færa þessar fregnir“ Nýja mamman „hefði þurft 1-2 mánuði í viðbót“ Sandra ekki í EM-hópnum en Rut fer með Svona var fundurinn er Arnar tilkynnti EM-hópinn Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“ Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Viktor Gísli í úrvalsliði fyrstu tveggja umferða undankeppninnar Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Sjá meira
Handvarpið: Með bakið upp við hinn fræga vegg Strákarnir okkar eru í vondum málum eftir skelfilegt tap gegn Hvíta-Rússlandi í dag, en farið er yfir leikinn og mögulega Íslands í nýjasta þætti Handvarpsins. 17. janúar 2016 20:16
Mögnuð stund: Strákarnir okkar og íslensku stuðningsmennirnir tóku „Ég er kominn heim“ Stuðningsmenn íslenska handboltalandsliðsins eru farnir að vekja athygli í Póllandi en í gærkvöldi tók hópurinn lagið Ég er kominn heim með Óðni Valdimarssyni til heiðurs strákunum okkar. 16. janúar 2016 11:40
Alexander stoppaði Norðmenn níu sinnum Alexander Petersson átti flottan leik í vörn íslenska liðsins í sigrinum á Noregi í fyrsta leik liðsins á EM í Póllandi. 16. janúar 2016 08:00
Aron Pálmarsson fékk langhæstu einkunnina hjá Hbstatz Aron Pálmarsson var besti leikmaður íslenska handboltalandsliðsins í sigrinum á Noregi í fyrsta leik liðsins á Evrópumótinu í Póllandi. 15. janúar 2016 23:30
Handvarpið: "Það þarf að tryggja úlnliðinn á Aroni Pálmarssyni“ Sigri á Norðmönnum var fagnað í þriðja þætti Handvarpsins, hlaðvarpi Vísis um stórmótin í handbolta. 16. janúar 2016 16:02