Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór í morgun undir 28 dollara á tunnuna. Það er lægsta verð sem fengist hefur fyrir tunnuna frá því árið 2003. Verðið rétti síðar örlítið úr kútnum og stendur nú í rétt rúmum 28 dollurum. Verðið hefur fallið um sjötíu prósent frá því um mitt síðasta ár. Þetta kemur fram í frétt á vef BBC.
Dýfuna má rekja til þess að viðskiptabanni Vesturlanda gegn Íran var aflétt í gær. Aflétting bannsins var hluti af samkomulagi Vesturlanda og Íran í kjarnorkudeilunni. Í gær staðfesti Alþjóða kjarnorkumálastofnunin að Íran hefði uppfyllt skilyrðin sem sett voru fyrir afléttingu bannsins.
Endurkoma Íran á markaðinn þýðir að framboð eykst um allt að hálfa milljón tunna á dag. Kjósi þeir að selja hluta af olíubirgðum landsins gæti sú tala náð milljón tunnum aukalega sem hefði enn meiri áhrif á olíuverðið. Varabirgðir landsins eru áætlaðar þær fjórðu stærstu í heiminum en sérfræðingar telja að til standi að koma hluta þeirra á markað.
Í gegnum tíðina hafa Samtök olíuríkja, OPEC, brugðist við offramboði með því að hægja á framleiðslu en slíkar tillögur hafa verið felldar að undanförnu. Sádi-Arabía hefur mælt einna mest gegn slíkum tillögum.
Það er mat sérfræðinga að olíuverð gæti haldið áfram að falla á næstu tveimur árum. Það má rekja til aðstæðna á mörkuðum í Evrópu og Kína en eftirspurn þar hefur minnkað að undanförnu og ekki sér fyrir endann á þeirri þróun.
Olíuverð ekki verið lægra frá árinu 2003

Tengdar fréttir

Íranar horfa fram á betri tíð
Alþjóðlegum refsiaðgerðum gegn Íran hefur að mestu verið aflétt, sem þýðir að efnahagslífið þar gæti tekið kipp á næstunni með bættum hag almennings. Íranar hafa staðið við sinn hluta kjarnorkusamningsins frá síðasta ári.

Kalt stríð Sáda og Írana í kjölfar aftöku
Hópur mótmælenda kveikti í sendiráði Sádi-Arabíu í Teheran á laugardag vegna aftöku á sjía-klerkinum Sheikh Nimr al-Nimr. Erkiklerkur Írans og æðsti embættismaður segir guðlega refsingu bíða Sáda. Sádi-Arabar hafa slitið stjórnmálatangsl við Íran.

Ausa fé úr olíusjóðum landsins til að halda hagkerfinu á floti
Konungsfjölskyldan í Sádi-Arabíu hefur það sem af er ári dreift upphæð sem nemur 48 leiðréttingum meðal íbúa landsins.

Viðskiptaþvingunum á Íran aflétt í dag
Fyrirtæki og bankar í Íran munu á nýjan leik geta stundað viðskipti við umheiminn.

Hráolía hríðfellur í verði
Verð náði 12 ára lágmarki í dag eftir að olían lækkaði um allt að sjö prósent.