Láttu gott af þér leiða

Margt í boði
Hér á landi er ýmislegt í boði fyrir þá sem vilja láta gott af sér leiða en nærtækust eru kannski íþróttafélögin sem börn margra hverra eru í. Þar er ýmislegt í boði fyrir þá sem vilja létta undir og gera félögin betri. Þeir sem hafa áhuga á hjálparstörfum geta skráð sig í björgunarsveitir, þar er ýmislegt í boði og mikill lærdómur sem getur fylgt starfinu. Til þess að verða fullgildur meðlimur í björgunarsveitum þarf að læra öll helstu undirstöðuatriðin og standast hæfnispróf til þess að einstaklingar séu fullfærir um að bjarga sér og öðrum í erfiðum aðstæðum. Rauði krossinn, Unicef, Barnaheill og önnur mannúðarsamtök þiggja alla þá hjálp sem þau geta fengið og það sama gildir um samtök eins og Fjölskylduhjálp og Mæðrastyrksnefnd. Dýrin þurfa líka þína hjálp og samtök eins og Dýrahjálp og Kattholt myndu án efa ekki slá hendinni á móti sjálfboðaliðum.
Hjálp með smærra sniði
Hafir þú ekki tök á því að vera sjálfboðaliði má hugsa verkefnið í smærra sniði. Vantar einhvern í kringum þig hjálp? Hlustaðu á fólkið í kringum þig, bæði heima og í vinnunni. Þeir sem þurfa á hjálp að halda eru kannski nær en þig grunar. Fólk er oft og tíðum óduglegt að biðja um hjálp nema þegar neyðin bankar upp á, vandamálin geta þá oft verið orðin svo stór að erfitt getur verið að leysa þau. Höfum augun og eyrun opin fyrir umhverfinu okkar og látum gott af okkur leiða á hverjum degi, meira að segja eitt lítið bros getur breytt degi einhvers til hins betra.
Tengdar fréttir

Gullni meðalvegurinn
Ekkert lát er á vaxandi mittismáli heimsbúa og stefnir í faraldur. Með auknu álagi á vinnumarkaði og í einkalífi virðist fólk frekar sækja í sykurríkara mataræði með fyrrgreindum afleiðingum.

Haldið upp á hamingjuna
Hvernig skilgreinir þú þína hamingju? Hvað er það sem eykur hamingju þína? Eru það huglægir eða veraldlegir hlutir eða upplifanir? Staldraðu við og veltu fyrir þér í hverju þín hamingja felist.

Hámarkaðu hollustu fæðunnar sem þú neytir
Sumar matvörur passa betur saman og eru til þess fallnar að hármaka næringargildi fæðunnar á meðan aðrar geta dregið úr því.

Kátust, sterkust, sætust
Þeir sem fróðari eru um næringarfræðin en þverskurður þjóðarinnar mæla með því að neytt sé fimm skammta af ávöxtum og grænmeti á dag. En skiptir máli hvort við njótum þeirra í fljótandi eða föstu formi? Kemur þetta ekki allt á sama stað niður hvort sem er?

Ertu alveg bensínlaus?
Líður þér stundum eins og allur lífsins kraftur sé úr þér tekinn og að þú standir á krossgötum í lífinu?

Úff, ég er svo útroðin og við það að springa
Getur maður raunverulega fitnað á örfáum dögum eins og yfir hátíðirnar?

Algengasta krabbamein ungra kvenna
Í dag er árveknisdagur sortuæxla en tíðni sjúkdómsins hefur aukist á Íslandi á undanförnum árum. Þessi tegund krabbameins hefur verið algengasta krabbameinið hjá ungum konum en nýleg rannsókn leiddi í ljós nýjan áhættuhóp.

Það eina sem við höfum fyrir víst er núið
Það er okkur eðlislægt að hugsa um liðinn tíma en hugum við nægilega mikið að núinu?