Hreiðar Már og saksóknari tókust harkalega á í héraðsdómi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 7. desember 2015 11:49 Björn Þorvaldsson saksóknari og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings. Vísir
Til snarpra orðaskipta kom á milli Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, og Björns Þorvaldssonar, saksóknara hjá sérstökum saksóknara, í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.Björn var vægast sagt ósáttur við ýmislegt sem fram kom í ávarpi Hreiðars, ekki síst ásakanir um að lykilvitni í málinu, Halldór Bjarkar Lúðvígsson, hefði gerst sekur um innherjasvik skömmu fyrir bankahrunið haustið 2008. Gríðarlegt og fáheyrt fjártjónHreiðar er ákærður, ásamt Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni bankans, fyrir umboðssvik vegna lána upp á 510 milljónir evra sem veitt voru til eignarhaldsfélaga í eigu vildarviðskiptavina bankans. Lánin voru veitt frá því í ágúst 2008 þar til í október sama ár en þau voru notuð til að kaupa lánshæfistengd skuldabréf sem tengd voru skuldatryggingarálagi Kaupþings banka með það fyrir augum að lækka skuldatryggingarálagið.Þá voru lánin einnig notuð til að leggja fram viðbótarframlag vegna kaupanna en Deutsche Bank seldi félögunum skuldabréfin og gat kallað eftir viðbótarframlagi ef skuldatryggingarálag Kaupþings fór yfir ákveðin mörk. Samkvæmt ákæru töpuðust öll lánin og er Hreiðari gefið að sök að hafa valdið Kaupþingi„gríðarlegu og fáheyrðu fjártjóni.”Voru að fylgja ráðgjöf frá Deutsche BankÍ upphafi ávarps síns sagði Hreiðar það alrangt að hann hafi ætlað að veita Kaupþingi fjártjóni en í ávarpi sínu sagði hann ásakanir um það særa hann inn að beini. „Ég tók ábyrgð mína sem forstjóri Kaupþings mjög alvarlega og ég helgaði líf mitt velgengni Kaupþings,” sagði Hreiðar. Hann rakti svo hvernig viðskiptin sem ákært er fyrir komu til og sagði markmiðið ekki hafa verið þau að valda Kaupþingi tjóni eða að auðga viðskiptavini bankans eða hluthafa.Bankinn hafi verið að fylgja ráðgjöf frá yfirmönnum hjá Deutcshe Bank þar sem breytingar á skuldabréfamarkaði höfðu valdið Kaupþingi nokkrum áhyggjum á síðari hluta árs 2007 og á árinu 2008.Kaupin á lánshæfistengdu skuldabréfunum hafi hafi verið gerð til þess að nýta stöðuga innlánasöfnun bankans á sem hagkvæmastan hátt og til þess að lækka skuldatryggingarálagið í samræmi við ráðgjöf Deutsche Bank, að sögn Hreiðars.„Það voru engin undarleg eða annarleg sjónarmið að baki þessum viðskiptum helur voru hagsmunir Kaupþings í fyrirrúmi,” sagði Hreiðar.Skýrslan „handrit að sakfellingu“Hann gerði svo vinnubrögð sérstaks saksóknara að umtalsefni og gagnrýndi harkalega skýrslu hans sem lögð hefur verið fram í málinu. Sagði Hreiðar skýrsluna langt því frá að vera hlutlaust plagg heldur væri þar um að ræða „handrit að sakfellingu”, eins og hann orðaði það. Þá sagðist Hreiðar efast um það að sannleiksást væri í hávegum höfð hjá starfsmönnum sérstaks saksóknara enda hefði embættinu verið komið á fót með það að markmiði „að koma örfáum stjórnendum úr einkabönkunum í fangelsi.” Sagði hann sérstakan saksóknara ekki hlutlausan ákæranda.Mótmælti Björn þessum orðum Hreiðars og sagði hann kominn út fyrir sakarefnið en Hreiðar sagði þá að þetta tengdist sakarefninu og vék þessu næst að þætti lykilvitnisins, Halldórs Bjarkars, sem var viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði Kaupþings.Sakaði lykilvitni um innherjasvikRakti Hreiðar hvað komið hefði fram í tölvupóstum Halldórs Bjarkars sem sakborningar og verjendur fengu aðgang að í liðinni viku. Sagði Hreiðar tölvupóstana sýna að Halldór Bjarkar hefði breytt framburði sínum algjörlega við rannsókn málsins en við yfirheyrslur hjá sérstökum saksóknara árið 2012 kvaðst Halldór Bjarkar hafa fengið fyrirmæli um veitingu lánanna frá Hreiðari.Hreiðar sagði tölvupóstana hins vegar sýna að Halldór Bjarkar hefði sent póst á yfirmann sinn, Bjarka Diego, vegna útgreiðslu lánanna.„Slíkur póstur hefði verið með öllu óþarfur ef að hann hefði verið í beinum samskiptum við mig,” sagði Hreiðar.Hann sagði síðan að Halldór Bjarkar hefði selt hlutabréf sín í tveimur félögum vegna þeirra upplýsinga sem hann bjó yfir sem starfsmaður Kaupþings, en félögin sem um ræddi voru Kaupþing og Exista.„Hann hefur sagt að honum hafi ekki litist á skuldastöðuna hjá Kaupþingi. [...] Hann bjó yfir meiri upplýsingum en aðrir fjárfestar á markaði.“„Ég skil vel að háttvirtum saksóknara líði illa undir þessum lestri" Saksóknari mótmælti þessum orðum Hreiðars og sagði hann vera að sakir á annan mann. Pétur Guðgeirsson, dómsformaður, leyfði Hreiðari hins vegar að halda áfram sem var orðið ansi heitt í hamsi. „Við höfum séð tvær ákærur vegna innherjasvika sem hafa leitt til sakfellinga en hér er ekki ákært þrátt fyrir þessa vitneskju. Ég skil vel að háttvirtum saksóknara líði illa undir þessum lestri. [...] Með því að beina sökum að mér tókst Halldóri Bjarkar að koma sér undan ákæru og sitja áfram á þýfi sínu.”Hreiðar hélt svo áfram í stutta stund áður en dómsformaður stoppaði hann af með þeim orðum að nú væri nóg komið. Tók þá Björn til við að spyrja hann út í ákæruatriðin.
CLN-málið Mest lesið Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Viðskipti erlent „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Viðskipti innlent Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Viðskipti innlent Nova kaupir Ofar Viðskipti innlent Allt á uppleið á Grundartanga Viðskipti innlent Einn stofnenda ASOS fannst látinn Viðskipti erlent Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Neytendur Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Samstarf Fleiri fréttir „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Erla Ósk nýr formaður Jafnvægisvogarráðs Sjá meira